

Maður lést er eldur kom upp í húsbíl í landi Torfastaða í Grafningi í Árnessýslu í dag.
Lögregla fékk tilkynningu skömmu eftir hádegi um mikið brunninn húsbíl. Segir í tilkynningu lögreglu um málið sem birt er nú í kvöld að lögregla hafi í fyrstu talið mögulegt að maður hafi verið í bílnum þegar eldurinn kom upp. Vettvangsrannsókn virðist hafa leitt í ljós að líkamsleifar manns á fertugsaldri voru í bílnum. Hefur lögregla tilkynnt aðstandendum mannsins um málið.
Auðkenni mannsins eru enn sem komið er óstaðfest, og kom kennslanefnd ríkislögreglustjóra að rannsókn á vettvangi í dag.
Að vettvangsrannsókn í dag komu lögreglumenn af Suðurlandi, tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, réttarmeinafræðingur og, sem fyrr segir, fulltrúar kennslanefndar ríkislögreglustjóra.
Eldsupptök eru enn ókunn. Lögregla óskar eftir að þeir sem kunna að hafa orðið varir við eld eða reyk á þessum slóðum í nótt eða í byrjun dags eða hafi aðrar upplýsingar sem kunna að skipta rannsókn málsins máli hafi samband við lögreglu á Facebook, í síma 444-2000 eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is.