

Egill Helgason minnist með hlýju Harðar Bergmann í færslu á Facebook sem vakið hefur athygli. Hörður Bergmann var kennari og sannkallaður þúsundþjalasmiður í fræðunum. Sagði í Morgunblaðinu þann 11. október 1989 að hann hefði lokið BA prófi í sagnfræði, dönsku og uppeldisfræði. Tilefni fréttarinnar var útgáfa Harðar á bókinni „Umbúðasamfélagið,“ þar sem hann sagði líf okkar jarðarbúa „vafið í dýrari og fánýtari umbúðir í nafni framfara.“ Má með sanni segja að Hörður hafi þarna reynst brautryðjandi fyrir það sem koma skyldi: Gagnrýni á botnlausa neysluhyggju nútímasamfélagsins.
Málefnið var honum greinilega hugfangið, því áttræðisafmælinu sínu fagnaði Hörður á málþingi Landverndar og Öldu um bækur Harðar og „ný leiðarljós í samfélagsumræðunni.“ Var málfundurinn kynntur svona:
Meðal umræðuefna verða hugvekjur Harðar um neysluhyggju og hófsemd og leiðina til betra samfélags. Þá verður fjallað um sýn hans á húsnæðiskerfið, tækniframfarir og lýðræði svo eitthvað sé nefnt. Hörður mun sjálfur flytja lokaorð.
Egill Helgason stýrði umræðum á málþinginu. Egill minnist nú, sem fyrr sagði, fallins félaga. Segir Egill meðal annars að Hörður hafi kennt sér dönsku í Hagaskóla og að hann hafi verið óþekkur þar, en síðar reynt að biðja hann Hörð afsökunar á því. „Hann gaf lítið fyrir það,“ segir Egill.
Færslu Egils má sjá í heild hér að neðan. Henni fylgja talsverður fjöldi athugasemda frá fólki sem tekur undir hlý orð Egils og bætir við sínum eigin.