fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Tæplega 800 reykvísk börn í sóttkví – fimm leikskólabörn með COVID

Erla Hlynsdóttir
Fimmtudaginn 8. október 2020 17:35

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls eru 780 reykvísk börn í sóttkví samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis eða smitrakningarteymis, þar af 148 leikskólabörn og 632 grunnskólabörn. Þar með eru 2,3% allra leikskólabarna í sóttkví og 4,11% allra grunnskólabarna.

Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn DV.

Þá eru fimm leikskólabörn í Reykjavík og 33 grunnskólabörn með COVID-19. Þrír starfsmenn leikskóla borgarinnar eru smitaðir og tólf starfsmenn grunnskóla.

Mikil aukning hefur verið á greindum smitum undanfarna daga og heilu árgangarnir í hinum ýmsu grunnskólum í sóttkví. Í morgun var til að mynda tilkynnt að allt unglingastig Háteigsskóla væri komið í sóttkví eftir að smit kom upp í nemendahópnum.

COVID-19 hefur mikil áhrif á börn og ungmenni og við þeim blasir nýr veruleiki. Þegar fyrsta bylgjan geisaði í vor, skömmu eftir að samkomubann var sett á, óskaði um­boðs­maður barna, í sam­starfi við KrakkaR­úv, eftir frá­sögnum barna og ung­menna af því hvernig það er að vera barn á tímum kóróna­veirunnar og hvernig far­aldurinn hefur haft á­hrif á dag­legt líf þeirra. Brot af þessum frásögnum er nú aðgengilegt á vef Umboðsmanns Barna. 

 

Hér meðfylgjandi er myndband frá Almannavörnum um örugga grímunotkun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast