fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Guðrún leitar að manninum sínum svo hún geti skilið við hann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 1. nóvember 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flest höfum við einhvern tíma fengið vinabeiðni á Facebook frá einhverjum utan úr heimi sem við könnumst ekkert við. Oft er um að ræða gerviaðganga sem ætlaðir eru til vafasamra nota. En ekki alltaf. Stundum leiða vinabeiðnir frá fjarlægum stöðum til náinna kynna.

Aras Nasradeen Kak Abdullah er ungur Kúrdi frá Írak sem hafði samband við Guðrúnu Benediktsdóttur, miðaldra konu úr Breiðholti, á Facebook. Þeim varð vel til vina á Messenger, svo vel að Aras kom hingað til lands og þau giftust árið 2017.

„Hann var sendur úr landi í ár eftir þetta – til Svíþjóðar. Það er alltaf gert eftir hjónavígslu, þá er farið að athuga hjúskaparstöðuna. Svo kom hann til mín 2018,“ segir Guðrún sem viðurkennir að hún hafi sótt fast að Aras fengi kennitölu og dvalarleyfi:

„Ég var svo blind en fjölskylda mín var búin að segja mér að um leið og hann fengi kennitölu myndi hann sparka mér. Ég leitaði til lögfræðings til að tala máli hans og hafði samband við Útlendingastofnun minnst tvisvar í viku til að reka á eftir málinu.“

„Ég hef ekki séð hann í ár“

Svo fór að Aras fékk dvalarleyfi og kennitölu á grundvelli hjónabandsins. Fljótlega eftir það slóst upp á vinskapinn hjá hjónunum. Guðrún segist hafa haldið Aras uppi og hann verið eins og ryksuga á fjármuni hennar. Hún sakar hann um að hafa beitt hana ofbeldi og gengið berserksgang í íbúð hennar. Einnig hafi hann stolið af henni.

Allt eru þetta ósannaðar ásakanir sem Guðrún hefur viðrað á Facebook, Aras til mikillar armæðu. Við viljum ekki útlista þær nánar en ástæðan fyrir því að DV sá sig knúið til að fjalla málið er sú staðreynd að Guðrún hefur ekki fengið skilnað frá Aras.

„Ég hef ekki séð hann í ár en hann býr í Reykjavík. Ég missi heimilisuppbótina, 45.000 krónur á mánuði, af því að ég er gift. Síðan erum við samsköttuð. Þetta er óþolandi ástand en ég er að leigja á frjálsum markaði fyrir 190.000 krónur á mánuði. Ég sé fyrir mér að ég verði farin að búa í tjaldi í Laugardalnum á næsta ári.“

Guðrún segist hafa farið mjög illa fjárhagslega út úr hjónabandinu þar sem hún hafi gefið Aras fé og haldið honum uppi. Segir hún meðal annars að 2,2 milljóna króna bætur sem hún fékk vegna bílslyss hafi gufað upp eftir utanlandsferð þar hún hélt honum uppi.

Mætir ekki til sýslumanns

Aras flutti út frá Guðrúnu og býr í Reykjavík. Hún segist ekki vita hvar hann heldur til. Hún hefur þó náð í hann í síma og þau hafa ræst við á Messenger en oftast segist hún ekki ná í hann.

Guðrún mætti til sýslumanns í janúar og skrifaði undir skilnaðarskjöl. Hún segir að Aras hafi svikist um að mæta í alls fjögur skipti til sýslumanns til að ganga frá þessu. „Síðast sagði sýslumaður að ég gæti ekki fengið skilnað af því að hann væri búinn að skrópa í fjögur skipti,“ segir Guðrún.

Þegar litið til hjúskaparlaga er ljóst að skilnaður er auðfenginn hjá sýslumanni ef hjón eru ásátt um að skilja. Ef aðeins annar aðilinn vill skilnað er reglan hins vegar sú að höfða þurfi dómsmál. Skilnaður er auðsóttur í gegnum dómstóla, sérstaklega ef aðstæður eru svipaðar og hjá þeim Aras og Guðrúnu. Til dæmis segir í kaflanum um hjónaskilnað vegna hjúskaparbrots:

„Höfða skal mál eða setja fram kröfu um leyfi til lögskilnaðar innan sex mánaða frá því að maka varð kunnugt um verknaðinn og þó eigi síðar en innan tveggja ára frá því að hann var framinn.“

Guðrún segist hins vegar ekki hafa efni á lögfræðingi og henni hafi verið neitað um gjafsókn. Því situr allt fast þar til Aras mætir til sýslumanns og skrifar undir pappírana.

Ljóst er einnig samkvæmt leiðbeiningum sýslumanns að hægt er að fá beinan lögskilnað þó að skilnaður að borði og sæng hafi ekki átt sér stað, ef hjón hafa slitið samvistir. „Hafi hjón ekki búið saman vegna ósamlyndis í tvö ár eða meira getur hvort um sig krafist lögskilnaðar, án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng.“ Það gildir um Guðrúnu og Aras.

Aras: „Komið með pappírana. Ég hef ekki séð neina skilnaðarpappíra“

DV hafði samband við Aras sem mætti í vinnugalla á ritstjórnarskrifstofuna. Hann starfar hjá byggingarverktaka. Aras harðneitar því að hafa beitt Guðrúnu ofbeldi og hann segist ekki hafa stolið frá henni. „Ég er með 900 þúsund krónur á mánuði, af hverju ætti ég að stela?“ segir hann.

„Hún er alltaf að hafa samband við mig og ég vil bara fá að vera í friði. Síðan birti hún óhróður um mig á Facebook. Ég sagði henni að gera ekki svona, þetta er einkamál.“

Aras er 32 ára en Guðrún 54 ára. Blaðamaður vakti athygli á þessum aldursmun við Aras sem brosti og svaraði: „That’s life.“

Aras segir að Guðrún hafi reynt að nýta sér það að hann sé útlendingur: „Hún lætur mig finna fyrir því að hún er héðan og ég ekki. Hún heldur að hún geti sagt og gert hvað sem er af því ég er ekki héðan.“

Hann segir jafnframt að Guðrún hafi leitað til hans um fjárhagsaðstoð og hann hafi gefið henni peninga.

Hann þvertekur fyrir að hafa neitað henni um skilnað. „Komið með pappírana. Ég hef ekki séð neina skilnaðarpappíra. Komið með þá og ég skal skrifa undir.“ Blaðamaður gerði Aras ljóst að fréttagildi frásagnarinnar fælist í því að Guðrún gæti ekki fengið skilnað hjá honum við núverandi aðstæður. Ef hann skrifaði undir skilnaðarpappíra væri grundvöllur umfjöllunar brostinn. Ríflega viku seinna hafði samt ekkert gerst í málinu.

Aras þvertekur fyrir að hann sé týndur Guðrúnu. Hann eigi skráð lögheimili í miðbænum þar sem hann búi. Þetta er rétt, Aras er skráður á heimilisfang í hverfi 101 í Þjóðskrá. „Ég fæ oft póst á þetta heimilisfang. Ef ég fengi skilnaðarpappíra myndi ég skrifa undir þá.“

Guðrún segir hins vegar að hann búi með annarri miðaldra konu. „Einu sinni þegar ég hringdi í hann svaraði einhver kona í símann og spurði hver ég væri. Ég sagðist vera konan hans Aras. Hún harðneitaði því og sagðist búa með honum.“

 

Talið líklegt að Aras verði sendur úr landi

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV sótti Aras um dvalarleyfi á grundvelli hjónabands og var veitt tímabundið leyfi sem rennur út í nóvember. Hann hyggst sækja um endurnýjun dvalarleyfisins á grundvelli þess að hann er með fasta vinnu og ráðningarsamning. Hann mun ekki sækja um leyfi á grundvelli hjónabands enda veit Útlendingastofnun að þau búa ekki lengur saman.

Þeir lögfræðingar sem DV hefur rætt málið við segja afar ólíklegt að Aras fái dvalarleyfi á þessum grundvelli og mestar líkur séu á að hann verið kominn út landi innan fárra mánaða. Þá ætti skilnaður að geta gengið hratt fyrir sig. Gallinn fyrir Guðrúnu er sá að hún þarf að höfða mál til að tryggja sér skilnað og hún segist ekki hafa efni á lögmanni. Hin lausnin er sú að þau Guðrún og Aras nái loksins saman um það að hittast hjá sýslumanni og ganga frá málinu. Bæði eru sammála um að þau ættu ekki að vera hjón og því undarlegt að málið leysist ekki.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Í gær

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Í gær

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Í gær

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“