fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Framkvæmdastjóri Kynnisferða hættir eftir sumar hneykslismála og uppsagna

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 7. september 2017 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynnisferðir/Reykjavik Excursions gáfu út tilkynningu í dag um að Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins muni láta af störfum. Kristján hefur stýrt Kynnisferðum í sex ár á tímum þegar ferðamannastraumurinn hefur aukist til muna og umfang félagsins einnig.

Björn Ragnarsson, rekstrarstjóri Hópbifreiða Kynnisferða mun taka við stjórn tímabundið þar til annar framkvæmdarstjóri tekur við.

Áfengi og glæfraakstur

Eins og DV greindi frá skóku ýmis hneykslismál félagið í sumar.

Þann 25. júní birtist myndband af hópferðaökumanni Kynnisferða þar sem hann sést aka mjög glæfralega á Mýrdalssandi. Rútan tekur fram úr bifreið og minnstu munar að hún lendi framan á bifreið sem kemur úr gagnstæðri átt. Báðir ökumenn þurftu að nauðhemla og beygja út í kant.

Sléttum mánuði seinna kom upp mál þar sem pólskur starfsmaður Kynnisferða var sagður smygla áfengi og öðrum munum inn til landsins með nýjum rútum fyrirtækisins. Vitni tjáði DV að hann hefði séð töluvert magn áfengis undir gólfi einnar rútunnar.

Þann 6. ágúst var hópferðabílstjóri Kynnisferða handtekinn við Jökulsárlón. Hann hafði sést drekka áfengi á hóteli við Freysnes í Skaftafelli og þegar lögreglan náði til hans reyndist hann mjög ölvaður.

Versnandi afkoma og uppsagnir

Þann 3. ágúst greindi Morgunblaðið frá því að á annan tug starfsmanna Kynnisferða hafi verið sagt upp störfum. Samkvæmt Kristjáni var ástæðan fyrir uppsögnunum hækkandi launakostnaður og aukin gjaldtaka, til dæmis í flugstöðinni í Keflavík. Þá sé einnig farið að hægja á ferðamannastraumi til landsins.

Kristján sagði að uppsagnirnar væru liður í hagræðingaraðgerðum innan fyrirtækisins og fólki úr öllum deildum hafi verið sagt upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust