fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Ölvaður rútubílstjóri Kynnisferða handtekinn við Jökulsárlón

Þriðja stóra málið stuttum tíma – Glæfraakstur og smygl

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 18. ágúst 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjú alvarleg mál hafa komið upp á einungis rúmum mánuði sem tengjast ökumönnum og öðrum starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækisins Kynnisferða/Reykjavík Excursions. Í tveimur tilvikum er um að ræða mál sem ógnuðu öryggi farþega í hópflutningabifreiðum en í hinu er um hugsanlega umsvifamikla smygl-starfsemi að ræða. Samkvæmt heimildarmönnum DV er það altalað meðal rútubílstjóra á BSÍ og víðar að fyrirtækið taki ekki á þessum málum.

Bílstjóri mjög ölvaður

Hópferðabílstjóri frá Kynnisferðum var stöðvaður af lögreglu sunnudaginn 6. ágúst, um verslunarmannahelgina, við Fosshótel Jökulsárlón í Öræfum. Tilkynning barst frá hóteli við Freysnes í Skaftafelli um að bílstjórinn hefði setið að drykkju áður en hann hélt út í bifreiðina með erlenda ferðamenn.

Bílstjórinn, sem er íslenskur maður um fimmtugt, sýndist ekki mjög ölvaður í fyrstu en eftir mælingar kom í ljós að hann hafði drukkið töluvert magn áfengis. Þegar lögreglan stöðvaði manninn var einn erlendur ferðamaður eftir í bílnum hjá honum, á leiðinni til Hornafjarðar. Aðrir farþegar voru þá farnir úr bifreiðinni.

Aðrar reglur gilda um ölvunarbrot atvinnubílstjóra en annarra ökumanna. Maðurinn var sviptur ökuréttindum sínum á staðnum og hann handtekinn. Hann hefur verið kærður vegna gruns um ölvun við akstur hópferðabifreiðar en enn eiga eftir að koma niðurstöður úr blóðsýnisrannsókn. Það tekur yfirleitt á bilinu 2–3 vikur að fá þau gögn.

Lögregla hafði samband við Kynnisferðir vegna atviksins og annar ökumaður tók við áætlunarferðinni. Kristján Daníelsson, forstjóri Kynnisferða, sagði að búið væri að vinna úr þessu máli: „Hann er ekki starfsmaður okkar lengur.“

Glæfraakstur

Þann 25. júní síðastliðinn náðist myndbandsupptaka úr fólksbifreið þar sem ökumaður hópferðabíls frá Kynnisferðum sást aka mjög hratt og glæfralega. Atvikið átti sér stað við Hjörleifshöfða á Mýrdalssandi.

Ökumaður hópferðabílsins tók fram úr á ofsahraða og minnstu munaði að hann lenti framan á annarri bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Ólafur Ísleifsson, sem náði atvikinu á myndband, sagði í samtali við Vísi: „Ökumaðurinn var nærri því búinn að drepa okkur báða. Þú sérð að þegar rútan fer fram hjá hinum bílnum þá er hún enn hálf inn á akreininni hans.“

Hjörleifshöfði á Mýrdalssandi.
Glæfraakstur Hjörleifshöfði á Mýrdalssandi.

Ólafur sagðist sjálfur hafa þurft að hemla harkalega og sveigja út í kant til þess að hópferðabíllinn kæmist aftur inn á rétta akrein. Hann var sjálfur með fellihýsi og því áhættusamt að hemla svo snögglega. Ökumaður bifreiðarinnar sem kom úr gagnstæðri átt þurfti að sama skapi að nauðhemla og keyra út í vegöxlina.

Eftir að atvikið kom upp tjáði Kristján fjölmiðlum að búnaður væri til staðar sem gerði stjórnendum kleift að fylgjast með hraða allra hópferðabifreiða fyrirtækisins. Þessi umrædda bifreið hafi ekki verið í eigu Kynnisferða en ökumaðurinn var á vegum þeirra. Sagði hann þá að hart yrði tekið á atvikinu. Nú segir Kristján málinu lokið. „Við erum búnir að klára þetta mál og hann er ekki starfsmaður fyrirtækisins lengur.“

Smyglað til lands með nýjum rútum

Þann 25. júlí greindi DV frá því að töluvert magn áfengis, bæði vodka og bjórs, hefði hefði fundist í nýrri hópferðabifreið í eigu Kynnisferða. Bifreiðum fyrirtækisins er breytt í Póllandi og þær síðan fluttar til Íslands frá Danmörku eða Hollandi.

Málið er talið tengjast pólskum starfsmanni Kynnisferða sem fer með mannaforráð og sér um að flytja bílana. Witold Jankowski sem er yfir rútuflutningadeildinni neitaði því að nokkuð áfengi væri í bílunum. Hann segir: „Það er ekkert [vín] í bílunum. Bara varahlutir og allt með reikningi.“

Hann sagðist einnig ekki sjá um að flytja bílana frá Póllandi heldur aðeins sækja þá frá höfninni í Þorlákshöfn og flytja þá til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá forstjóra Kynnisferða hefur hann örugglega flutt bílana frá Póllandi til hafnar í Danmörku eða Hollandi.

Samkvæmt heimildarmanni DV hefur smygl með rútum staðið yfir lengi innan fyrirtækisins og ekki einungis á áfengi. Með bílunum komi eldhúsinnréttingar, bílvélar, bílskúrshurðir og fleira.

Þegar áfengismálið kom upp sagði Kristján að málið yrði skoðað innan fyrirtækisins og mjög líklega yrði haft samband við lögreglu ef þetta reyndist rétt. Kristján segir nú að enn hafi ekkert fundist varðandi þetta mál en rannsókn innan fyrirtækisins hefur eingöngu farið fram með samtölum við starfsmenn. „Það eru ekki komnar neinar niðurstöður úr því. Við höfum ekkert til að sýna lögreglunni.“

Kristján staðfesti þó að rætt verði við umræddan starfsmann um atvikið þegar hann snýr aftur til vinnu en hann er nú í sumarfríi erlendis.

Ánægðir með starfsmannamálin

Lögreglan á Suðurlandi staðfestir að það sé ávallt ökumaður sem beri refsiábyrgðina gagnvart lögum nema hvað varðar þætti sem snerta akstur og hvíldartíma ökumanna. Þá segir yfirmaður tollgæslunnar á Suðurlandi að mál Kynnisferða hafi ekki komið inn á sitt borð. Jafnframt: „Ef fyrirtæki sem ætlar sér að gera rétt varðandi tilkynningar þá ætti það að leita til okkar.“ Hann staðfestir einnig að eftir að fréttir bárust af þessu máli í júlí muni bílar fyrirtækisins kannaðir sérstaklega.

„Ef fyrirtæki sem ætlar sér að gera rétt varðandi tilkynningar þá ætti það að leita til okkar“

Kristján segir að ekki sé þörf á að endurskoða starfsmanna- og ráðningarmál hjá fyrirtækinu. „Við erum nokkuð ánægð með okkar ráðningarferli. Þegar þú ert með stóran hóp af fólki þá ertu með fjölbreyttan hóp.“ Um 600 manns starfa nú hjá fyrirtækinu sem hefur vaxið mjög að undanförnu vegna aukins ferðamannastraums hér á landi.

Hann segist þó ekki taka þessum málum af léttúð. „Allar ábendingar eru skoðaðar hjá okkur og ákvarðanir teknar í framhaldi af því. Svona mál eru tekin mjög alvarlega.“ Til að mynda hafa ökumennirnir tveir verið leystir frá störfum. Þá hafi verkferlum fyrirtækisins varðandi rútuflutninga verið breytt til að auka gagnsæi og koma í veg fyrir að smygl geti átt sér stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“