fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Vildi prófa að verða mannsbani – Tilefnislaust morð á Akureyri – Kveikti í Litla-Hrauni

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 1. júní 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem betur fer eru fá morð framin á Íslandi á ári hverju. Sum ár eru þó verri en önnur, til dæmis árið 1976 þegar fjórir Íslendingar voru myrtir. Þar á meðal maður á þrítugsaldri, Guðbjörn Tryggvason, á Akureyri. Morðið var tilefnislaust og þekkti Guðbjörn ekki banamann sinn, Úlfar Ólafsson, sem var einungis átján ára gamall.

Stal riffli og otaði að menntskælingum

Úlfar Ólafsson, átján ára sjómaður, braust inn í sportvöruverslun Brynjólfs Sveinssonar við Skipagötu aðfaranótt sunnudagsins 4. apríl árið 1976. Úlfar hafði áður komið við sögu lögreglunnar í bænum, ávallt fyrir smáglæpi. Í versluninni fann hann 22 kalíbera riffil af gerðinni Remington og skot. Í búðinni hleypti Úlfar margsinnis af rifflinum og olli þar töluverðum skemmdum á innanstokksmunum. Þaðan hélt hann út með hlaðinn riffilinn með sér og einnig nokkuð af peningum sem hann fann.

Um fjögur leytið mættu honum tveir piltar, nemendur úr Menntaskólanum á Laugarvatni, við Akureyrarkirkju. Varð þeim nokkuð brugðið og þá mundaði hann riffilinn og gaf í skyn að hann ætlaði að skjóta þá. En síðan lét hann byssuna síga, sagði þeim að hún væri óhlaðin og hló. Fóru þeir svo sína leið.

Guðbjörn Tryggvason
Varð á vegi Úlfars hina örlagaríku nótt.

Tilefnislaust morð

Skömmu eftir þetta mætti Úlfar Guðbirni Tryggvasyni, 28 ára, við Heiðarlund, skammt frá Lundaskóla. Guðbjörn var kvæntur tveggja barna faðir úr Glerárþorpinu, sem var á göngu til félaga síns. Þeir Úlfar þekktust ekkert en töluðu stuttlega saman. Ekki er vita hvað fór þeirra á milli en það var þó ekki hávaðarifrildi og Úlfar alveg rólegur. Strax eftir þetta skaut Úlfar Guðbjörn margsinnis af stuttu færi sem varð honum að aldurtila. Fjögur skot höfnuðu í hnakkanum og eitt í öxlinni.

Klukkan sjö um morguninn voru hjón á ferð í bíl og sáu út um gluggann illa leikið líkið. Var samstundis haft samband við lögregluna sem kom á vettvang. Riffillinn fannst 160 metrum frá og var ljóst að reynt hafði verið að fela hann í snjóskafli. Fékk lögreglan einnig fljótt vitneskju um innbrotið í sportvöruverslunina og hafði riffillinn sem fannst sama raðnúmer og sá sem fannst. Lék aldrei nokkur vafi á að um manndráp hefði verið að ræða.

Heiðarlundur
Vettvangur morðsins.

Vildi prófa að verða mannsbani

Lögreglan yfirheyrði fjölda fólks vegna morðsins, þar á meðal menntskælingana fyrrnefndu. Reyndu þeir að lýsa byssumanninum eins vel og þeir gátu. Maður frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík var sendur norður og snör handtök höfð við rannsókn málsins. Úlfar var einn af þeim sem var yfirheyrður og ósamræmi í framburði hans leiddu til þess að hann var handtekinn og grunaður um verknaðinn.

Úlfar var yfirheyrður í rúman sólarhring uns hann loks játaði að hafa framið morðið. Af hverju? Að eigin sögn var það til þess að prófa að verða mannsbani. Það hafi verið draumur hans lengi. Algjört handahóf réði sem sagt ódæðinu. Guðbjörn var sagður hæglátur og dagfarsprúður maður og ekki vitað að hann hefði átt sökótt við nokkurn mann.

Úlfari var vitaskuld gert að sæta geðrannsókn en var metinn sakhæfur og ákærður fyrir morðið. Miðvikudaginn 3. nóvember þetta ár var Úlfar dæmdur fyrir morðið á Guðbirni í Sakadómi Akureyrar. Hlaut hann hámarksrefsingu, sextán ára fangelsi, þar sem hann var ekki talinn eiga sér neinar málsbætur. Var málinu sjálfkrafa áfrýjað til Hæstaréttar. Þann 27. febrúar árið 1978 mildaði Hæstiréttur dóminn niður í tólf ára fangelsisdóm. Var ungur aldur hans metinn til refsilækkunar. Einnig að hann hafi játað brot sitt og gengið hreinskilnislega við því.

Úlfar Ólafsson
Vann að plötunni Rimlarokki ásam Sævari Cieselski sem einnig sést á myndinni.

Kveikti í Litla-Hrauni

Sumarið 1981 hlaut Úlfar dóm fyrir íkveikju á Litla-Hrauni þar sem hann afplánaði refsivist sína. Hann, Kristmundur Sigurðsson, sem einnig hlaut dóm fyrir manndráp og einn annar fangi, báru eld að fatageymslu á neðstu hæð hússins. Magnaðist eldurinn svo að kalla þurfti til slökkviliðið á Eyrarbakka, sem var um klukkustund að ráða niðurlögum hans. Fangaverðirnir sjálfir tóku einnig þátt í slökkvistarfinu og fengu sumir þeirra reykeitrun. Erfiðlega gekk að ná út þeim föngum sem sátu í einangrunarklefum. Skemmdirnar á fangelsinu voru einnig töluverðar.

Sökudólgarnir þrír  hlutu tveggja ára fangelsisvist fyrir verknaðinn þar sem þeir voru taldir hafa komið bæði samföngum sínum og fangavörðunum í bráðan lífsháska. Grunur lék á að íkveikjan hafi verið hluti af flóttatilraun en höfnuðu þeir því alfarið.

Úlfar bjó síðustu árin í Danmörku. Hann lést árið 2009, 51 árs að aldri.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla