Maðurinn með horröndina á efri vörinni var eitt sinn titlaður bjartasta von Afríku. Hann var frelsishetja nýlendunnar Suður-Ródesíu sem varð að Simbabve árið 1980. Snemma á ferlinum hóf hann að ofsækja hvíta bændur og tugþúsundir voru myrtar eða flæmdar úr landi. Þeir sem tóku við búunum gátu ekki haldið uppi matarframleiðslunni og hungursneyðir tóku við. Mugabe var steypt af hernum árið 2017 og settur í stofufangelsi.
Idi Amin Dada var einræðisherra í Úganda árin 1971 til 1979. Amin var áður kokkur í breska hernum og í stjórnartíð hans gekk sá orðrómur að hann eldaði fólk og æti það. Amin komst til valda með vopnavaldi og beitti mikilli hörku allan sinn feril. Hundruð þúsunda voru myrt eða hurfu sporlaust, flestir úr Acholi- og Lango-ættbálknum. Amin var skrautleg persóna og leit á sig sem konung og sigurvegara. Hann var að lokum sendur í útlegð.
Vilhjálmur var síðasti keisari Þýskalands og dreymdi mikla stórveldisdrauma. Á fyrstu árum 20. aldarinnar var hans helsti draumur að leggja undir sig Ameríku og lét hann þrisvar sinnum skipuleggja árásir á landið. Vilhjálmur var sá sem bar hvað mestu ábyrgðina á fyrri heimsstyrjöldinni þar sem milljónum manna var att út í forað dauðans. Þjóðverjar beittu gasi og eldvörpum í stríðinu til að valda sem mestum ótta. Hann flúði til Hollands eftir stríðið.
Hinn fyrsti og „eilífi“ leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Il-sung, olli dauða milljóna þegna sinna á nærri hálfrar aldar valdatíð sinni. Flestir dóu í Kóreustríðinu sem hófst skömmu eftir að Il-sung komst til valda. Bardagarnir stóðu yfir í þrjú ár og skiluðu engu því landamærin enduðu á sama stað. Liðu svo árin og smám saman breyttist Norður-Kórea í eitt hræðilegasta ríki heims. Íbúarnir sultu en herinn efldist.
Pol Pot var aðeins leiðtogi Kambódíu í nokkur ár á áttunda áratugnum en hann komst til valda eftir að Bandaríkjamenn útfærðu Víetnamstríðið til landsins. Talið er að rúmlega tvær milljónir hafi farist, eða fjórðungur Kambódíumanna, frá 1975 til 1979. Pol Pot rak fólk úr borgum í sveitir, ofsótti menntafólk og neyddi börn til að rísa upp gegn foreldrum sínum. Víetnamar ráku hann frá völdum árið 1979.
Þegar Ceausescu komst til valda í Rúmeníu árið 1965 þótti hann framsæknasti og nútímalegasti leiðtogi Austur-Evrópu – ljós í myrkrinu. Ekki leið á löngu þar til það snerist við og þótti alræði hans slá bæði Sovétmönnum og Austur-Þjóðverjum við. Á áttunda áratugnum fór efnahagurinn á hliðina og Ceausescu seldi matvælin úr landi sem orsakaði eiginlega hungursneyð á þeim níunda. Þegar kommúnisminn féll voru Ceausescu og kona hans Elena leidd fyrir aftökusveit, á sjálfan jóladag árið 1989.
Mussolini komst til valda í Ítalíu í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar og reyndi að byggja upp nýtt Rómaveldi. Hann náði hins vegar einungis Albaníu og Eþíópíu með eigin herafla og þurfti að hanga í pilsfaldinum hjá Adolf Hitler. Mussolini var samsekur í hildarleiknum og varð að lokum hataður af eigin þegnum. Hann og eiginkona hans voru drepin, líkin hengd upp til sýnis og almenningur kastaði mannaskít í þau.
Maó var guðfaðir Alþýðulýðveldisins Kína og stýrði því með harðri hendi til dauðadags árið 1976. Maó var hetja úr seinni heimsstyrjöldinni og hróður hans jókst þegar hann bjargaði Norður-Kóreumönnum í Kóreustríðinu og lagði undir sig Tíbet. Hróðurinn minnkaði hins vegar á sjöunda áratugnum þegar hann kvaddi Kínverja til þegnskylduvinnu í „stóra stökkinu“ og um tuttugu milljónir týndu lífinu í hungursneyð. Þá hófst einnig mikið ofstæki menningarbyltingarinnar.
Varla þarf að kynna Stalín og hans voðaverk fyrir lesendum. Stalín komst til valda í Sovétríkjunum eftir dauða Lenín árið 1924. Skömmu síðar hófust ofsóknir á hendur óvinum og ímynduðum óvinum Stalín, eða „hreinsanir.“ Stalín varð að hetju í seinni heimsstyrjöldinni og litu þá margir fram hjá því að um tíu milljónir hefðu dáið í hungursneyðum vegna ákvarðana hans. Stalín dó árið 1953.
Hitler er sjálfkjörinn í efsta sæti listans. Hann er frægasta illmenni sögunnar og kvaldi ekki einungis eigin þegna heldur þegna allrar Evrópu. Hitler komst til valda með lýðræðislegum leiðum og hóf snemma ofsóknir á hendur kommúnistum og gyðingum. Hann hóf blóðugustu styrjöld sögunnar þar sem allt að 85 milljónir manna týndu lífinu. Þar að auki stundaði hann iðnaðarmorð á minnihlutahópum. Hitler framdi sjálfsvíg árið 1945.