Kris Jenner, móðir Khloé, Kim og Kourtney Kardashian og Kylie og Kendall Jenner, var í viðtali við Sunday Morning á CBS fyrir stuttu og talaði meðal annars um hve mikið dætur sínar þéna á samfélagsmiðlum. Allar eru þær áhrifavaldar með margar milljónir fylgjenda, en Kris segir þær fá tilboð frá fyrirtækjum nánast daglega.
„Dætur mínar fá stanslaust tilboð um að birta eitthvað fyrir fyrirtæki eða vörumerki á samfélagsmiðlum,“ segir hún. „Þær eru með visst gjald fyrir færslu, gjald fyrir „story“, gjald fyrir Facebook – þær eru með gjaldskrá,“ bætir hún við.
Kris segir jafnframt að þær þéni vel á því að vera áhrifavaldar.
„Þær græða klárlega sex stafa tölu,“ segir hún um hvaða gjald systurnar taka fyrir auglýsingar, en bætir við að gjaldið hækki ef um er að ræða eitthvað sem þær drekka, melta eða setja á líkama sinn.
Khloé, Kim og Kourtney hafa einmitt allar verið gagnrýndar fyrir að auglýsa detox-te og megrunardrykki síðustu misseri og styðja þannig við óheilbrigða líkamsímynd. Það er víst allt falt fyrir peninga.