fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Ingibjörg Eyfjörð er hrædd við það sem fólk hugsar: „Getur hún ekki haft hemil á börnunum sínum?“

Öskubuska
Þriðjudaginn 13. febrúar 2018 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fór í gullfallega skírnarveislu hjá yndislegri vinkonu, sem reyndar breyttist svo í brúðkaup Salurinn, veitingarnar, vinkona mín og fjölskyldan hennar – allt óaðfinnanlegt.

Svo, ég ætla að mála mynd fyrir ykkur.
Þið farið í veislu, þið setjist niður með kaffibollann ykkar og fylgist spennt með því sem er að gerast, reynið að heyra hvert orð sem sagt er, taka þátt í söngnum – vera með.

En þið getið það ekki almennilega, því hinum megin í salnum eru lítil sæt krakkagerpi hlaupandi, færandi stóla og með læti algjörlega grunlaus um að nú sé kannski ekki beint stundin til að prófa nýju hátíðnihljóðin sem þau voru að læra að gera.

Á eftir börnunum er kvíðin móðir

Á eftir litlu sætu krakkagerpunum er hlaupandi mamma. Það er hlaupandi mamma í skyrtu sem hún hefur ekki farið í, í marga mánuði því hún hefur ekki haft ástæðu til að klæða sig upp. Það er hlaupandi mamma sem er búin að svitna svo í umtöluðu skyrtuna að hún þakkar Guði fyrir það að skyrtan sé svört svo svitablettirnir sjáist ekki í gegn. Það er hlaupandi mamma sem skammast sín niður í hæla yfir því að hún þurfi að elta börnin sín sem bara hreinlega geta ekki setið og hlustað á svona.

Þau geta ekki sýnt þá þolinmæði sem þarf þangað til að allar ræður eru búnar og gestirnir geta loksins fengið sér að borða. Það er hlaupandi mamma á eftir þessum börnum sem er svo kvíðin að fara með börnin sín á svona mannamót því hún er hrædd um augun sem horfa á sig.

Hún er hrædd við það sem fólk hugsar:

“Getur hún ekki haft hemil á börnunum sínum?”
“Af hverju geta börnin hennar ekki verið kyrr?”
“Kunna þau enga mannasiði?”

Ég er þessi hlaupandi mamma, skyrtan fína er komin í óhreina tauið og verður eftir þvott sett aftur upp í skáp þar sem hún verður næstu mánuði.

Ég fór í veislu og ég gat lítið fylgst með af því að ég á lítið sætt krakkagerpi sem vill ekki vera kyrr. Ég á líka aðeins stærra sætt krakkagerpi sem rápaði svo mikið í og úr sætinu sínu að ég er nokkuð viss um að hann eyddi mestum tíma í það að færa stólinn. Sem betur fer er þessi vinkona mín svo skilningsrík að það hálfa væri hellingur. En fyrir mig fylgir mikill kvíði að fara í svona veislur eða einhverja hittinga þar sem eru fleiri en fjórir.

Að vera „þessi mamma”

Að vera „sú mamma”. Mamman sem á litlu óargadýrin. Og ég er oftast sú mamma, því ég á börn sem elska að hlaupa, þau elska að vera á hreyfingu og skoða fólk og sýna sig. Þau eru lítil fiðrildi alveg eins og mamma sín.

í veislum þá er yfirleitt ein svona mamma. Ein mamma sem á börn sem vilja bara vera börn og hlaupa. Sú mamma skammast sín líklega og svitnar alveg jafn mikið og ég gerði.

Ég hef bara ein skilaboð til þessarar mömmu:

Ég sé þig, og ég skil þig svo vel. Þú ert að gera þitt besta – ekki hafa svona miklar áhyggjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu