fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Ragga nagli – „Hvað skal snæða fyrir snemmæfingar?“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. júlí 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Í þessum fjallar hún um nokkur næringaráð fyrir þá sem velja að stunda æfingar að morgni til.

Margir hanga á hurðahúninum þegar musteri líkamans opna rennihurðina klukkan sex núll núll að morgni.
Inn streyma hermenn morgunsins, víkingar og valkyrjur fullar af eldmóði að safna meira siggi í lófa og þófa.

En hvað skal snæða fyrir slíkar snemmæfingar?

Það er ekki allra að hoppa og hamast með magann fullan af hafragraut.

Fæstir nenna heldur að munda sleif og spón hlóðirnar fyrir dögun að kokka upp haframjölið.

Sumir fá sjóriðu að tæta upp stál og spæna spretti án þess að hafa eitthvað eldsneyti í tanknum og dúndra í sig hálfum banana.

Öðrum líður fínt að æfa á galtómri görninni.

En eru fullir angistar um að spæna upp amínósýrur úr vöðvunum sem kosta jú blóðsúthellingar, rassasvita og jafnvel örfá tár að byggja upp.

Hér eru nokkur ráð fyrir æfingameli sem fara á fætur á undan blaðberunum og vilja hámarka árangur sinn.

?Drekka 5-15 g BCAA amínósýrum eða Pre-workout drykk 15-20 mínútum fyrir æfingu. Amínósýrurnar koma af stað prótínmyndun í vöðvum og nýtast sem eldsneyti.
Rannsóknir sýna að inntaka BCAA seinkar þreytu í vöðvum.

?Borða vel af kolvetnum, prótíni og fitu í kvöldmat. Margir telja að þeir muni ekki standa sig eins vel ef þeir dúndra ekki í sig kolvetnum rétt fyrir æfingu, en vel samsett máltíð kvöldið fyrir veitir fínar birgðir af bensíni næsta morgun.

Það getur verið gott að seinka kvöldmatnum örlítið til að það líði styttra frá máltíð til æfingar.

?Fóðraðu hungraða vöðvana eftir æfingu með prótíni og kolvetnum. Sumir eru eins og vannærðir fuglsungar strax eftir æfingu, en aðrir finna ekki fyrir hungri fyrr en 2-3 tímum seinna. Finndu hvað virkar fyrir þig.

Hafðu í huga að það er engin rétt eða röng leið þegar kemur að því að næra sig fyrir og eftir æfingu.

Finndu bara leiðina sem hentar þér og þú getur viðhaldið.

Facebooksíða Röggu nagla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Brotist inn í kirkju
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
Pressan
Í gær

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.