Nú er ég sjálf að berjast við mikinn kvíða og langar til þess að deila með ykkur þeim ráðum sem ég nota oft þegar ég fæ kvíðakast.
Ég átta mig alveg á því að hver og einn er misjafn enda er ég að deila mínum ráðum sem virka á mig og getur vonandi einhverjum hjálpað öðrum.
1. Hlusta á rólega tónlist og gera öndunaræfingar
2. Fara út í bíltúr á einhvern stað þar sem þú ert ein/n og öskra! Þvílík útrás sem maður getur fengið út úr því
3. Mér finnst oft virka að hugsa ekki of mikið um hlutina og hugsa hvað væri það versta sem gæti gerst sem er svo oft ekki það slæmt, en fer eftir aðstæðum auðvitað.
4. Tala við einhvern sem ég treysti, það eru stundum mismunandi manneskjur sem ég get talað við sitthvorn hlutinn. Það er um að gera að tala við manneskjuna sem þú treystir fyrir aðstæðunum.
5. Hlaupa! Hvort sem það er í ræktinni eða úti! Oftast þegar ég verð pirruð og fæ einhvern kvíðahnút í magan þá finnst mér æðislegt að hlaupa þangað til mér byrja að líða eins og lungun í mér séu að springa!
6. Ekki halda þessu inni! Hvað sem er í gangi. Ekki setja á þig grímu og byrgja allt saman inni, þú springur á endanum sem er viðbjóðsleg tilfinning! Það er ekki hollt fyrir neina manneskju að byrgja hlutina inni. Alveg sama hversu erfitt það er að tala við einhvern þá bara gerðu það samt. Þér mun líða betur á endanum!
7. Síðast og það sem mér finnst mikilvægast! EKKI GEFAST UPP!! Þetta líður hjá á endanum! Þessi hugsun hefur gert rosalega mikið fyrir mig. Sérstaklega þegar ég er mjög langt niðri, finnst eins og allt sé ómögulegt eða er á mörkunum að æla af kvíða, það líður allt hjá.
Hugsið vel um ykkur.
Færslan birtist upphaflega á Mæður.