fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Carrie Underwood hylur andlit sitt eftir slys – Verður aldrei söm

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. janúar 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Carrie Underwood er greinilega enn að jafna sig eftir fall fyrir utan heima hjá sér í nóvember.

Hún braut úlnlið og greinilega skaðaðist í framan samkvæmt skilaboðum frá henni. Ljóst var í nóvember að hún þurfti á spítala vegna meiðsla, en það er fyrst núna sem hún gefur upp að hún þurfti á 40-50 sporum að halda í andlitið og segir hún að afleiðingarnar séu þær að hún „líti ekki alveg eins út og áður.“

Underwood sendi póst til aðdáenda sinna þar sem segir „Það er annar hluti í sögunni sem ég hef ekki verið tilbúin til að tala um áður þar sem ég er enn að átta mig á því og það hefur verið óljóst hver niðurstaðan yrði. Það er brjálað hvernig slys getur breytt lífi þínu.“

„Auk þess að brjóta úlnlið, þá tókst mér að skadda andlit mitt líka. Ég sleppi nánari lýsingum, en þegar ég kom úr aðgerðinni þá var læknirinn búinn að segja eiginmanni mínum að saumuð voru 40-50 spor í andlit mitt.“

Tveir mánuðir eru liðnir frá slysinu og felur Underwood andlit sitt ennþá. Hún deildi þó þessari mynd á Instagram.

„Ég vil að þið skiljið af hverju ég lít aðeins öðruvísi út. Ég vona að breytingarnar verði smávægilegar, en ennþá veit ég ekki hvernig þetta mun enda.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool sagt hafa gert tilboð í varnarmann á Ítalíu

Liverpool sagt hafa gert tilboð í varnarmann á Ítalíu
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Enn ein meiðslin hjá dýrasta leikmanni í sögu Liverpool

Enn ein meiðslin hjá dýrasta leikmanni í sögu Liverpool
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hitnaði í kolunum í beinni útsendingu – „Þetta kalla ég hrútskýringar“

Hitnaði í kolunum í beinni útsendingu – „Þetta kalla ég hrútskýringar“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.