fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026

Britney Spears biður aðdáendur sína um að biðja fyrir litlu frænku sinni

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 7. febrúar 2017 15:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sunnudaginn lenti litla frænka Britney Spears í hræðilegu slysi og liggur þungt haldin á sjúkrahúsi. Britney birti mynd af henni á Instagram í dag og bað aðdáendur sína um að biðja fyrir frænku sinni. Maddie er átta ára dóttir Jamie Lynn Spears, yngri systur poppstjörnunnar. Slysið varð þegar Maddie var á litlu fjórhjóli á fjölskyldulandareign en hún beigði snögglega með þeim afleiðingum að hún endaði ofan í stórri tjörn þar sem erfitt reyndist að ná henni upp aftur.

https://www.instagram.com/p/BQL8DIzAaln/?taken-by=britneyspears

Móðir Maddie og stjúpfaðir voru viðstödd og stukku strax í vatnið ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum til þess að bjarga Maddie litlu. Samkvæmt tímaritinu People var hún föst í öryggisbelti og öryggisneti undir fjórhjólinu svo þau náðu ekki að koma henni upp úr vatninu. Sjúkrabíll kom mjög fljótt á staðinn og náðist þá að losa stúlkuna og flytja hana á sjúkrahús. Talið er að Maddie hafi verið í einhverjar mínútur án súrefnis. Stjúpfaðir Maddi birti þessa mynd af „tjörninni“ á Instagram en þar sést vel hvað þetta er stórt vatn.

https://www.instagram.com/p/BQJE0HBg2ZT/?taken-by=jamiewatson985

Maddie liggur nú þungt haldin á sjúkrahúsi en líðan hennar er stöðug eins og er. Britney flaug strax til Louisiana til þess að vera með fjölskyldu sinni á þessum erfiða tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Össur hjólar í Jón Pétur – „Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti“

Össur hjólar í Jón Pétur – „Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.