fbpx
Föstudagur 17.maí 2024

Snillingurinn Chrissy Teigen gerði það sem allar konur í hælaskóm hafa íhugað

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 11. janúar 2017 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við á Bleikt elskum fyrirsætuna Chrissy Teigen, hún er svo innilega hreinskilin og fyndin. Þegar Chrissi var á rauða dreglinum fyrir Golden Globes hátíðina með eiginmanni sínum John Legend varð hún ótrúlega þreytt enda á háum hælaskóm sem hugsanlega voru eitthvað óþægilegir líka. Í stað þess að þjást í hljóði og setja upp gervibros þá ákvað Chrissi að gera frekar það sem allar konur sem nota hælaskó hafa íhugað á einhverjum tímapunkti, hún settist niður.

Mynd/Getty

Það eru ekki margar stjörnur sem hafa sest niður á rauða dreglinum á svona stórum viðburði. Chrissi lét þó eins og ekkert væri eðlilegra og heilsaði meðal upp á stjörnur eins og Ryan Gosling, án þess að standa upp auðvitað. Leikkonan Blake Lively varð vitni að þessu og gaf hún henni fimmu fyrir að hlusta á líkamann og setjast til þess að hvíla sig. Chrissy heldur sífellt áfram að koma okkur skemmtilega á óvart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Frakkar opinbera landsliðshópinn fyrir Evrópumótið

Frakkar opinbera landsliðshópinn fyrir Evrópumótið
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Salah og Alisson efstir á blaði í Sádí Arabíu

Salah og Alisson efstir á blaði í Sádí Arabíu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.