fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

GÓÐIR VINIR ERU BESTA MIXTÚRAN

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 28. apríl 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef hrifist af mörgu í lífinu og er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt (svo lengi sem ég er með annan fótinn á jörðinni), en það er þrennt sem mér líkar frábærlega: félagsskapur góðra vina, góður matur (sem einhver annar en ég elda) og að taka þátt í leikjum. Þetta sameinaðist fyrir stuttu þegar ég var svo heppin að vinna í Facebook-leik og átti kost á að bjóða allt að tíu vinum með mér út að borða. Vinkonurnar sem ég bauð þekktust ekki allar fyrir og sumar þeirra þekktu bara mig, en mér finnst einmitt líka mjög gaman að hrista saman fólk úr öllum áttum. Það var síðan gaman að sjá hvernig vinkonurnar röðuðust við borðið, við þrjár sem höfðum verið saman í grunnskóla settumst saman, þessar tvær sem munu búa úti á landi settust saman og svo framvegis. Einnig kom í ljós að fjórar okkar þekktu eigandann frá fyrri störfum. Úr varð hreint bráðskemmtileg kvöldstund sem ég mun minnast lengi. Og vonandi fæ ég sem fyrst aftur tækifæri til að hrista ólíka vini mína saman.

Núna þegar sumarið hefur bankað upp á samkvæmt dagatalinu, þó að veðrið haldi áfram að vera dyntótt dag frá degi og þrjóskist við að halda í kulda og snjó, hristir Séð og Heyrt af sér vetrardvalann og skellir sér í nýjan búning og framvegis mun Séð og Heyrt fylgja DV alla föstudaga.

Í Séð og Heyrt verður stefnan sett á að hrista saman efni um alls konar fólk, hvort sem það er með viðtölum, viðburðum eða öðru efni. Maður er manns gaman og við ætlum að hafa það skemmtilegt saman á síðum Séð og Heyrt.
Ég tek vel á móti öllum ábendingum, um viðmælendur og viðburði sem eru fróðlegir, áhugaverðir og skemmtilegir, á netfanginu ragna@dv.is.

Með sumarkveðju kæru lesendur, Ragna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís
Fókus
Fyrir 3 dögum

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hrafnkell Ívarsson hlutskarpastur í „Sterkasti maður Íslands“ – Sjáðu myndbandið

Hrafnkell Ívarsson hlutskarpastur í „Sterkasti maður Íslands“ – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“