Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins til margra ára, fagnaði því á dögunum að hin víðlesna heimasíða hans, bjorn.is, fékk nýtt útlit. Óhætt er að segja að Björn sé einn af frumkvöðlum íslenskrar bloggmenningar en vefsíða hans hefur verið í loftinu í 22 ár og virðist Björn hvergi nærri hættur.
Í færslu á síðu sinni segir Björn frá því að hann hafi þurft að uppfæra útlit síðunnar í takt við öra þróun veraldarvefjarins.