

Útvarpsmaðurinn úr Harmageddon, Frosti Logason, hefur sett íbúð sína í Vesturbæ á sölu. Íbúðin er á efstu hæð í fjölbýlishúsi við Birkimel og er tæplega áttatíu fermetrar að stærð.
Ásett verð eru rétt tæpar 40 milljónir króna enda er íbúðin glæsilega innréttuð. Frosti hefur átt íbúðina í áratug en undanfarið hefur hann búið þar ásamt unnustu sinni, Helgu Gabríelu Sigurðardóttur. Í ágúst síðastliðinn eignuðust þau soninn, Loga, sem gert hefur það að verkum að litla fjölskyldan þarf að stækka við sig.