fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Idris Elba opnar sig um James Bond orðróminn: „Bond er svo óraunverulegur“

Fókus
Mánudaginn 8. júní 2026 21:00

Idris Elba. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Idris Elba segir að það hafi aldrei neitt verið til í því að hann tæki að sér hlutverk ofurnjósnarans James Bond. Elba er í ítarlegu viðtali við tímaritið GQ en þar er hann meðal annars spurður út í orðróminn, tekur blaðamaðurinn fram að Elba hafi ranghvolft í sér augunum þegar málið barst á góma.

„Það var aldrei neitt til í þessu. Þetta var alltaf bara orðrómur,“ segir Elba.

Orðrómurinn á rætur sínar að rekja við frumsýningu Quantom of Solace árið 2008 um svipað leyti og Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna, sagði Daniel Craig við það tækifæri að líklega væri kominn tími á svartan James Bond. Elba segir að aðdáendur sínir hafi tekið Craig á orðinu.

„Mér finnst það ekki raunsætt. James Bond var skrifaður eins og hann var skrifaður af ástæðu. En mér fannst ekkert leiðinlegt að það væri rætt um mig. Svo ég sé meira raunsær þá tel ég að sumir markaðir yrðu ekkert hrifnir. Bond er vinsæll út um allan heim og það verða ekki allir glaðir ef Bond verður leikinn af svörtum manni. Það er bara ekki þannig í þeirra menningu. Punktur.“

Elba bætir við að hann telji enga þörf á að breyta James Bond. „Bond er svo óraunverulegur, það má vera smá raunveruleiki en við skulum ekki fara að gera hann woke.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe
Fókus
Fyrir 5 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“