fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fókus

Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria

Fókus
Mánudaginn 18. maí 2026 13:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska leikkonan Sydney Sweeney þykir fátt skemmtilegra en að ögra áhorfendum og það hefur hún svo sannarlega gert í þriðju þáttaröðinni af Euphoria.

Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda meðal ungs fólks en þar fer Sweeney með eitt af aðalhlutverkunum ásamt Zendaya, Jacob Elordi og Hunter Schafer.

Í þættinum í gærkvöldi tók persóna Sweeney, Cassie Howard, þátt í kynferðislega hlaðinni myndatöku þar sem hún sést kviknakin með stóra slöngu vafða utan um líkama sinn.

Þátturinn hefur vakið sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum, en þriðja þáttaröð Euphoria hefur verið gagnrýnd talsvert fyrir sífellt öfgafyllra kynferðislegt innihald.

Í nýju þáttaröðinni hefur Cassie til dæmist færst sífellt dýpra inn í heim umdeildrar netfrægðar og kynferðislegs efnis á netinu.

Viðbrögð áhorfenda voru allskonar og sitt sýnist hverjum. „Þessi þáttur var svo skrýtinn,“ sagði til dæmis einn. „Hvað er að frétta með plottið í Euphoria,” spurði annar.

Sweeney hefur áður varið nektarsenur sínar í þáttunum og sagt þær mikilvægan hluta af þróun persónunnar. Hún hefur einnig gagnrýnt það sem hún telur tvöfalt siðgæði gagnvart leikkonum sem taka að sér nektarhlutverk.

Þrátt fyrir gagnrýni heldur Euphoria áfram að vera meðal umtöluðustu sjónvarpsþátta samtímans, og nýjasta atriði Sweeney hefur þegar farið eins og eldur í sinu um netheima.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Lestraráskorun fyrir börnin – Vegabréf fyrir lesturinn

Lestraráskorun fyrir börnin – Vegabréf fyrir lesturinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“
Fókus
Fyrir 1 viku

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar