

„Jeminn – mér var bent á þetta skjáskot þar sem ég virðist læka þessa ömurlegu færslu frá þessum Tjörva sem ég þekki ekki neitt persónulega,” segir Líf en í umræddri færslu var fundið að því að regnbogafáninn hefði verið inni í kennslustofu í Hagaskóla þar sem hægt var að kjósa um helgina.
Líf segir að lækið hafi verið óviljandi enda efni pistilsins á skjön við hennar skoðanir.
„Ég vil taka fram að þetta hefur verið þumalputta skrun í síma á einhverjum tímapunkti og ég hafði ekki hugmynd um þetta læk. Mjög leiðinleg skrunmistök. Ég myndi aldrei læka svona ömurlegheit í garð hinsegin fólks og regnbogafánans enda stend ég heilshugar með hinsegin fólki, hinsegin samfélaginu og réttindabaráttu og mannréttindum almennt.”
Líf tekur fram í færslunni að hún hafi aflækað þennan „ómanneskjulega og hatursfulla status“. Þá biðst hún afsökunar á því að fólk hafi þurft að eyða tíma í að hneykslast á þessu og halda einhverju misjöfnu fram um afstöðu hennar til hinsegin málefna.
„Kúdos til Alexöndru Briem sem var svo elskuleg að hnippa í mig,“ segir hún síðan.
Alexandra skrifar sjálf athugasemd við færslu Lífar þar sem hún segir: „Þóttist vita að þetta gæti ekki passað.“
Í athugasemd segist Líf nýlega hafa fengið sér nýjar neglur og þær geri það að verkum að það sé erfitt að skruna í síma og skrifa á lyklaborð.
Líf tekur svo fram að lokum að verkefni dagsins sé að fara í gegnum allar lækfærslur í „activity log“ frá því að hún fékk nýju neglurnar.