

Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason biður þjóðina alla afsökunar á neyðarlegum mistökum sem áttu sér stað í Morgunútvarpinu í morgun þar sem hann ranglega fullyrti að þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, færi fram á sunnudegi í ár.
Hefur hann nú birt yfirlýsingu vegna málsins þar sem hann lýsir yfir fullri ábyrgð og segist geta og ætla að gera betur í framtíðinni.
„Í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun varð mér á að tilkynna þjóðinni að 17. júní yrði á sunnudegi í ár. Þetta fullyrti ég af talsverðu sjálfstrausti, enda taldi ég mig vera að horfa á áreiðanleg gögn fyrir framan mig. 17. júní ber hins vegar upp á miðvikudegi í ár.
Þetta veit ég núna.
Það er stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu. Ég ætla hins vegar ekki að skýla mér á bakvið það, tek fulla ábyrgð á þessum mistökum og hef þegar farið fram á að óháð úttekt verði gerð á störfum mínum í Morgunútvarpinu. Ég er vissulega í andlegu ójafnvægi vegna leiks Tindastóls og Grindavíkur í úrslitkeppninni í körfubolta í kvöld en það er engin afsökun. Ég get gert betur og mun gera betur.
Sárast í þessu er að ég laug ekki bara upp í opið geðið á þjóðinni, ég laug upp í opið geðið á Gunnu Dís, sem elskar ekkert meira en frídaga í miðri viku.
Ég lofa að gera allt sem í mínu valdi stendur til að sjá til þess að þessi mistök endurtaki sig ekki og vil biðja Gunnu Dís og þjóðina alla afsökunar.Takk fyrir að hlusta.“
Þar sem fjölmiðlamaðurinn telst nú rúinn trausti ákvað Fókus að rannsaka málið og getur staðfest að 17. júní hittir á miðvikudag í ár. Árið 2029 mun 17. júní þó lenda á sunnudegi.