fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fókus

Nýja húðflúrið hennar Rihönnu er vægast sagt óvanalegt – „Ímyndið ykkur að kíkja á þetta þegar hún er orðin eldri“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 10. maí 2026 11:35

Rihanna er móðir þriggja barna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Rihanna fékk sér nýlega húðflúr sem hannað var eftir teikningu eins barnanna hennar. Erfitt er að greina hvað myndin á að tákna.

Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.

Flestir foreldrar þekkja það að afkvæmið kemur stolt til þeirra með nýtt „listaverk“. „Vá, hvað þetta er flott hjá þér,“ segir foreldrið en góðar líkur eru á að listaverkið sé komið í tunnuna áður en dagurinn er úti.

Það á ekki við um söngkonuna Rihönnu, sem var svo ástfangin af listaverki eins af þremur barna sinna að hún lét húðflúra myndina á sig.

Rihanna birti myndina af nýja flúrinu og upprunalegu myndinni sem það var hannað eftir á Instagram. Húðflúrið er aftan á fótlegg söngkonunnar, sem er 38 ára, en hún er fyrir með tugi húðflúra víðs vegar um líkamann.

„Ímyndið ykkur að kíkja á þetta þegar hún er orðin eldri…..sætasta mamman,“ segir einn í athugasemdum við færsluna.

Húðflúrið var hannað eftir mynd smábarns. Skjáskot/Instagram

„Hún er alltaf svo frumleg þegar kemur að húðflúrum,“ segir annar.

Á meðal húðflúra Rihönnu má nefna fæðingarárið hennar 1998 á hægri ökkla, fiskamerkið á bak við hægra eyra og mynd af egypsku gyðjunni Isis á bringunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 6 dögum

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar
Fókus
Fyrir 1 viku

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 1 viku

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu