

Deadline greinir frá þessu en Baltasar og Charlize Theron unnu saman í myndinni Apex sem frumsýnd var nýlega á Netflix.
Samkvæmt heimildum Deadline verður Baltasar leikstjóri mun Charlize Theron framleiða myndina og að líkindum fara með eitt af aðalhlutverkum hennar.
Í frétt Deadline kemur fram að myndin byggi á óútgefinni skáldsögu eftir rithöfundinn Stan Parish, sem einnig vinnur að handriti myndarinnar. Söguþráður myndarinnar hefur enn ekki verið gerður opinber enda myndin enn á þróunarstigi.
Deadline segir að Theron framleiði myndina í gegnum framleiðslufyrirtæki sitt Secret Menu samkvæmt samstarfssamningi hennar við Universal Pictures, ásamt framleiðendunum AJ Dix og Beth Kono. Baltasar kemur að verkefninu fyrir hönd Blueeyes Productions.
Eins og að framan greinir verður þetta annað samstarfsverkefni Baltasars og Theron á skömmum tíma en Apex var frumsýnd þann 24. Apríl síðastliðinn.
Myndin fór beint í efsta sæti yfir vinsælustu enskumælandi kvikmyndir Netflix á heimsvísu og hefur haldið toppsætinu í tvær vikur samfellt.
Óvíst er hvenær framleiðsla hefst en í frétt Deadline er bent á að bæði Baltasar og Theron séu upptekin í öðrum verkefnum sem stendur.
Theron er nú við tökur á spennumyndinni Tyrant fyrir Amazon MGM Studios, á meðan Baltasar Kormákur vinnur að Netflix-myndinni The Big Fix með Mark Wahlberg og Riz Ahmed í aðalhlutverkum.