fbpx
Miðvikudagur 11.júní 2025
Fókus

Strípalingar himinlifandi með frjálslyndan golfvöll

Fókus
Mánudaginn 9. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gróft áætlað eru um 40 þúsund golfvellir á jarðkringlunni en aðeins einn þeirra, að því er best er vitað, heimilar strípalingum að spila þar golf eins og þeim líður best, kviknöktum.

Golfvöllurinn La Jenny er staðsettur um 60 kílómetrum frá Bordeaux og þar eru öðruvísi reglur en annarsstaðar varðandi klæðaburð. Það er einfaldlega ekki annað í boði en að spila völlinn nakinn.

Þeir sem veigra sér ekki við slíku eru himinlifandi með völlinn og segja það engu líkt að spila golf og finna grasið undir tánum og andvarann leika við, tja bara allt heila klabbið.

Það er síðan vel við hæfi að völlurinn er aðeins sex holur og þá fær klúbbhúsið sérstakt lof, þar er víst gott að tylla sér og fá sér drykk eftir átökin.

Illu heilli er það þó ekki svo að menn geti bara mætt á La Jenny, vippað sér úr fötunum og skellt sér á fyrsta teig. Til þess að fá að spila völlinn þarf að bóka sér gistingu á sérstöku hóteli við golfvöllinn þar sem gestir eru almennt naktir.

Hótelið fær úrvals dóma enda er þar allt til alls, nema fatnaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bandarísk kona deilir upplifun sinni af íslenska heilbrigðiskerfinu – Hissa þegar hún fékk reikninginn

Bandarísk kona deilir upplifun sinni af íslenska heilbrigðiskerfinu – Hissa þegar hún fékk reikninginn
Fókus
Í gær

„Reynum ekki að þröngva spíra með hópþrýstingi, smánun og samviskubitsvæðingu“

„Reynum ekki að þröngva spíra með hópþrýstingi, smánun og samviskubitsvæðingu“
Fókus
Í gær

Viktor er búinn að nota bótox í 10 ár og er ekki hættur – „Maður var einu sinni meira frosinn“

Viktor er búinn að nota bótox í 10 ár og er ekki hættur – „Maður var einu sinni meira frosinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heimildarmaður segir krabbamein Karls konungs vera ólæknandi

Heimildarmaður segir krabbamein Karls konungs vera ólæknandi