Streymisveitan Netflix hefur tryggt sér sjónvarpsréttindin á borðspilinu vinsæla Catan og hyggst framleiða bæði bíómynd og sjónvarpsþætti byggða á því. Um er að ræða bæði leikið efni og teiknimyndir.
Hið þýska Catan, eða Die Siedler von Catan, var hannað af Klaus Teuber árið 1995. Hefur það selst í tugmilljónum eintaka og verið þýtt á tugi tungumála. Er spilið talið hafa hrundið af stað eiginlegri gullöld í hönnun borðspila á heimsvísu þar sem Þjóðverjar og Frakkar hafa verið í fararbroddi.
Miðillinn Variety greinir frá því að Netflix hyggist nú nýta sér hinar miklu vinsældir Catan og búa til sjónvarpsefni. Verða ýmsir framleiðendur hjá útgefanda spilsins Asmodee viðriðnir verkefninu. Sem og Benjamin Teuber, sonur hönnuðarins Klaus sem lést árið 2023.
„Milljónir hafa notið Catan síðan það kom á markað og hjá mörgum var þetta hlið að heimi nýrra borðspila. Ég er himinlifandi að sjá spilið ná til stærri áhorfendahóps sem mun uppgötva auðævi þessa heims og ég tel að þetta sé mjög spennandi fyrir framtíð vörumerkisins,“ sagði Thomas Koegler, stjórnarformaður Asmodee.
Catan snýst um miðalda landnema á samnefndri eyju. Teuber sagði hins vegar sjálfur að hugmyndin væri sprottin af landnámi Íslands. Spilið hefur einnig náð miklum vinsældum hérlendis.