fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Ólga vegna tilkynningar um að Karíbahafið sé á leið í Eurovision – „Þetta er Eurovision, ekki Worldvision“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 3. janúar 2024 11:30

Auglýsingin hefur vakið athygli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný auglýsing fyrir Eurovision sem birt var núna um áramótin hefur valdið þó nokkru höfuðklóri. Í henni segir að Karíbahafið sé á leiðinni í keppnina.

„Karíbahafið er að koma til Eurovision söngvakeppninnar í Malmö 2024“ segir í stuttu myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum. „Fylgist með, við getum ekki beðið eftir að segja ykkur meira“ segir svo í færslunni með myndbandinu.

Engar aðrar upplýsingar fylgja auglýsingunni. En í myndbandinu eru Eurovision stefið spilað á stáltrommur, sem eru einkennishljóðfæri Karíbahafsins.

Ólga á samfélagsmiðlum

Vangaveltur hafa verið um hvort myndbandið merki að Karíbahafseyju eða eyjum verði hleypt inn í keppnina. Í Karíbahafinu eru 13 sjálfstæð ríki auk nokkurra sjálfstjórnarhéraða. Jamaíka, Barbados, Bahama eyjar, Trinidad og Tóbagó og margar fleiri eyjar. Fjöldi þekktra tónlistarmanna hafa komið frá Karíbahafinu. Meðal annars Bob Marley, Wyclef Jean og Rihanna.

Ekki eru allir hrifnir af tilhugsuninni um að hleypa Karíbahafseyjum inn í keppnina.

„Þetta er Eurovision, ekki Worldvision“ sagði einn reiður netverji í athugasemd við færsluna.

„Það eru allt of mörg lönd í Karíbahafinu,“ sagði annar.

Rihanna frá Barbados er skærasta tónlistarstjarna Karíbahafsins um þessar mundir. Mynd/Getty

„Ég hlýt að hafa verið of upptekinn af því að súpa á stafrænum kókossafa og misst af þeirri stund þegar Karíbahafið ákvað að ganga í Evrópu,“ sagði enn annar netverji með þjósti.

Yrði ekki í fyrsta skiptið

Í frétt bresku fréttastofunnar Sky um málið er hins vegar bent á að Eurovision keppnin hafi ekki alltaf verið bundin við landafræði álfunnar.

Ástralíu var boðið að taka þátt árið 2015 vegna einskærs áhuga andfætlinga á keppninni. Það þróaðist hins vegar út í að Ástralía keppir á hverju einasta ári núna.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Eurovision Song Contest (@eurovision)

Ef þú sérð ekki færsluna hér að ofan getur virkað að endurhlaða síðuna.

Ísrael hefur keppt síðan árið 1973 og unnið tvisvar og Norður-Afríkulandið Marokkó keppti árið 1980. Þá hefur Tyrkland keppt síðan árið 1975 þrátt fyrir að vera að langstærstum hluta í Asíu og Kákasusríkin Georgía, Armenía og Aserbadjan eru oft talin til Asíuríkja frekar en Evrópuríkja.

Keppendum fækkar

Alls er óvíst að EBU séu að hleypa einu eða fleiri Karíbahafsríki inn í keppnina sem haldin verður 7. til 11. maí. Hugsanlegt er líka að Karíbahafsríki sendi saman keppendur til Malmö, líkt og þau senda sameiginlegt landslið á stórmót í krikket. Eða þá að auglýsingin þýði eitthvað allt annað.

Hafa ber í huga að þjóðum hefur farið fækkandi í Eurovision á undanförnum árum. 37 þjóðir kepptu árið 2023, sem er það minnsta síðan árið 2014. Í ár er hugsanlegt að Rúmenía detti út vegna fjárhagsörðugleika. Þá eykst þrýstingurinn á að vísa Ísraelum úr keppninni vegna innrásarinnar á Gasa.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall