fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Misnotuð af starfsmanni í grunnskólanum frá tíu ára aldri – Segir að hann hafi síðar orðið lögreglustjóri

Fókus
Mánudaginn 22. janúar 2024 11:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TW – Við vörum við lýsingum á kynferðisofbeldi í greininni.

34 ára gömul kona segir sögu sína í nýjasta þætti hlaðvarpsins Sterk saman. Hún kemur fram nafnlaus vegna ótta við mennina sem beittu hana ofbeldi.

„Ég segi söguna mína vegna þess að fólk þarf að vita að það sem hefur komið fyrir mig gerist á litla Íslandi. Ókunnugir nauðga, fólk lendir oft í ofbeldi, misnotkun á sér stað í grunnskólum og fólk í háum stöðum beitir ofbeldi.“

Konan var misnotuð í fjögur ár af starfsmanni grunnskólans sem hún gekk í. Misnotkunin byrjaði þegar hún var tíu ára og stóð yfir til fjórtán ára aldurs.

„Ég trúði því að hann væri kærastinn minn. Þetta er svo brenglað. Ég var byrjuð að hitta einn strák þarna 14 ára og þessi maður gerði allt sem hann gat til að skemma það.“ Hún segir frá því hvernig þessi fullorðni maður, sem síðar varð lögreglustjóri, talaði illa um unglingsstrákinn við foreldra hennar til að stía þeim í sundur.

„Ég losnaði á endanum frá honum en þá var hann farinn að sýna annarri stelpu mikla athygli, ég veit ekki hvort það gerðist eitthvað þar en grunar það.“

Hrottaleg nauðgun á útihátíð

Fimmtán ára gömul fór hún ásamt vinkonu sinni á útihátíð en tekur það fram að hún var ekki drukkin. Það komu eldri strákar á bíl og sýndu mér áhuga. Þeir báðu mig að koma í göngutúr, sem ég gerði, fóru með mig í gám og nauðguðu mér hrottalega.“ Hún segir frá þessari hrikalegu lífsreynslu þar sem teknar voru myndir af henni og fleira.

„Ég gat ekki gengið eðlilega eftir þetta og laug einhverju um hvað hafi komið fyrir.“

Hún upplifir enn þann dag í dag kvíða yfir því að þessar myndir muni einn daginn birtast einhvers staðar en hún veit hvaða menn gerðu henni þetta.

„Ég lenti á borði við hliðina á öðrum þeirra um ári seinna í útlöndum og truflaðist gjörsamlega. Mér var sagt að ég væri bara klikkuð og að haga mér eins og geðsjúklingur en þarna sá ég nauðgara minn og triggeraðist illa.“

Þráði viðurkenningu

Konan er greind með geðhvarfasýki eitt og segir frá því hvernig hæðir og lægðir hafa einkennt líf hennar en hún fékk ekki rétta greiningu fyrr en hún flutti erlendis. Hún ber íslenska kerfinu ekki góða söguna en hún hefur, veikinda sinna vegna, þurft að leita sér aðstoðar hjá geðdeildum ásamt annarra deilda innan sjúkrahússins.

Eins og oft vill verða leita þolendur ofbeldis í það sem þeir þekkja og hefur hún lent í mörgum ofbeldissamböndum í gegnum tíðina auk þess sem hún leitar mikið í viðurkenningu frá karlmönnum.

„Ég veit að ég þráði viðurkenningu og það á rætur í æskuna og áföllin. Ég er orðin betri í dag samt.“

Konan hrækti á hana meðan þeir skiptust á

Í meðalstóru bæjarfélagi var hún ein á ferð seint um kvöld þegar tveir menn og ein kona réðust á hana og nauðguðu henni og börðu illa. „Ég veit ekkert hvaða fólk þetta var, veit bara að tungumálið var frá Litháen eða Póllandi eða eitthvað svoleiðis. Konan hrækti á mig og sparkaði í mig og eitthvað á meðan þeir skiptust á að nauðga mér.“

Lögreglan brást henni og það staðfesti sú sem hún talar við hjá Stígamótum.

„Mér finnst mikilvægt að fólk viti að það eru ekki bara einhverjir í innsta hring eða sem þú þekkir sem nauðga eða beita ofbeldi, það gerist líka svona bíómyndadæmi á Íslandi, þó ég hafi lent í hinu líka.“

Hlustaðu á þáttinn hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall