

Fyrr í dag óskaði erlendur maður, með færslu í Facebook-hópnum Reykjavik, ICELAND, Travel & Vacation, sem segist vera á leið í ferð til Íslands eftir upplýsingum frá Íslendingum um hvað væri best að gera og hvers konar staði væri best að heimsækja til að kynnast lífinu og menningunni á Íslandi sem best. Flest svörin voru hvorki löng né flókin og yfirleitt á eina lund.
Maðurinn biður í færslunni um ábendingar um eitthvað þrennt til að gera eða heimsækja til að kynnast lífinu og menningunni eins og það er í dag hér á landi. Einnig biður hann um ráð um eitthvað þrennt sem hann ætti að forðast.
Einn einstaklingur ráðleggur honum meðal annars að fara í matvörubúð og kynnast þannig hinu daglega lífi Íslendinga. Viðkomandi ráðleggur ferðamanninum einnig að leita uppi menningarviðburði og sumarhátíðir.
Eitt ráð sem maðurinn fær er heimsækja miðborg Reykjavíkur.
Algengasta ráðið sem maðurinn hins vegar fær er einfaldlega að fara í sund. Einn einstaklingur sem veitir honum þetta ráð bætir við hvatningu um að fara eftir reglunum sem allir Íslendingar ættu að þekkja. Að fara undir sturtuna án klæða áður en farið er ofan í laugina. Undanfarin ár hafa oft borist fréttir af því að misvel gangi að fá gesti af erlendum uppruna til að hlýða reglunum ekki síst þá sem koma frá löndum þar sem þykir langt frá því sjálfsagt að baða sig án klæða innan um annað fólk. Hvort það muni eiga við um fyrirspyrjandann skal ósagt látið.