fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fókus

Gafst upp eftir árs búsetu á Íslandi: Mælir samt með heimsókn og þessum fimm stöðum

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 28. janúar 2024 20:30

Annabel Fanwick Elliott

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í mánuðinum sögðum við frá hinni bresku Annabel Fanwick Elliott, sem er pistlahöfundur hjá Telegraph. Elliott kom til Íslands sem ferðamaður árið 2018, heillaðist af landinu og vildi búa hér. Fjórum árum síðar þegar hún og unnusti hennar fengu tækifæri til að flytja til Íslands ákváðu þau að slá til enda hafði unnustinn fengið spennandi starf sem þyrluflugmaður hér á landi. Parið entist eitt ár hérlendis og í pistli sínum segir Elliott nánar frá því.

Sjá einnig: Fluttu til Íslands en entust bara í eitt ár: Þetta eru ástæður þess að þau gátu ekki meir

Grein Annabel má lesa í heild sinni á vef Telegraph en þrátt fyrir að hafa gefist upp á að búa hér mælir Elliott með heimsókn og telur einnig upp fimm hluti sem allir verða að gera ef þeir heimsækja Ísland.

Heimsókn í náttúrulaugar

„Bláa Lónið. Það ferðamanna­leg­asta sem þú get­ur gert, en það er ástæða fyrir heimsókn, þessi hlýji, ljós­blái jarðhiti er dásamlegur. Þú getur synt að bar í lóninu, fengið kís­il­leir til að bera á all­an lík­amann og margt fleira. Ef þú átt nóg af seðlum þá skaltu gista á Retreat-hót­elinu,“ seg­ir Elliott. Hún mælir einnig með að heimsækja Sky Lagoon, helst að kvöldi til, og böðunum í Hvamms­vík sem eru með út­sýni yfir hafið.

Vestmannaeyjar best geymda leyndarmál landsins

„Eitt best geymda leynd­ar­mál Íslands, sem við vissum ekki einu sinni af fyrr en stuttu áður en við flutt­um frá Íslandi, er litla eyjan Heima­ey sem er hluti af Vest­manna­eyj­um og er í aðeins 45 mín­útna fjar­lægð með ferju frá meg­in­land­inu,“ seg­ir Elliott.

„Heimaey er heim­kynni stærstu lunda­byggðar heims og fyrsta griðasvæði hvít­hvala, svo dýra­lífs­unn­end­ur eiga eftir að verða hæstánægðir með heimsóknina. Hjá Glamp­ing & Camp­ing getur þú sofið í skálum rétt við ströndina en skálarnir eru í stíl Hringa­drótt­ins­sögu­.“

Þyrluflug

Eins og áður sagði starfaði unnusti Elliott sem þyrluflugmaður hérlendis og segir hún hann hafa flogið með fullt af rík­um viðskipta­vin­um sem hafi reglu­lega ferðast með þyrl­um. „Viðskiptavinirnir sögðu allir að Ísland væri magnaðasta land sem þeir hefðu flogið yfir, og þyrluflug er besta leiðin til að sjá sem mest af landinu og frá einstöku sjónarhorni og það á einum degi.“

Ljósmyndaferð

Elliott mæl­ir með ferðum franska ljós­mynd­ar­ans Kévin Pagès. „Ljós­mynda­áhuga­fólk í leit að fal­leg­um mynd­um finnur ekki betri stað en Ísland, landi eld­fjalla, jökla, fossa og hvera.“

Skoðunarferð um Suðurland

Elliott bendir á að margir af áhugaverðustu stöðum landsins séu á Suðurlandi, þar á meðal Selja­lands­foss, Skóga­foss, ís­hellar við Kötlu og svört sand­strönd við Vík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990
Fókus
Fyrir 4 dögum

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð