fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

433
Laugardaginn 28. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.

Breiðablik var í Sambandsdeildinni þar til skömmu fyrir jól og því undirbúningstímabil þeirra sett saman á aðeins annan hátt en hjá öðrum liðum.

video
play-sharp-fill

„Þeir voru bara með ungt og efnilegt lið í leikjunum um daginn. Þeir eru smám saman að týna sína menn inn. Ég held það séu einhverjar vikur í að við eigum eftir að sjá Blikana í þokkalegu standi,“ sagði Sigurbjörn.

„Þeir þurfa að toppa öðruvísi. Tímaramminn þeirra er annar. Ég er á því að ef eitthvað lið á að vinna Víkingana sé það Breiðablik. Það er engin sérstök lógík á bak við það nema bara að þeir hafa verið að gera það, undanfarin ár,“ sagði Jóhann en benti á að nýi þjálfarinn, Ólafur Ingi Skúlason, væri nokkuð óskrifað blað í þjálfun á þessu stigi.

„Hans áskorun verður að ná meira út úr þeim leikmönnum sem ollu vonbrigðum í fyrra. Eins og Óla Val, hann þarf að sýna miklu meira. Líka Anton Logi, sem er á sínum degi einn allra besti miðjumaðurinn í þessari deild.“

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum
433Sport
Í gær

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar
Hide picture