fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fókus

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 16:30

Prinsessurnar áttu ekki von á handtökunni. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prinsessurnar Eugenie og Beatrice, dætur Andrew Mountbatten-Windsor, eru miður sín eftir handtöku hans í síðustu viku. Þær hafa verið á krísufundum um helgina. Móðir þeirra, Sarah Ferguson, fyrrverandi eiginkona Andrew er í felum.

Andrew var handtekinn á fimmtudag, á 66 ára afmælisdegi sínum, vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Andrew hefur verið sleppt en enn þá stendur yfir húsleit á fyrrverandi heimili hans. Andrew er sá fyrsti úr konungsfjölskyldunni til þess að vera handtekinn síðan Karl I konungur á sautjándu öld. Talið er hugsanlegt að Andrew verði einnig ákærður fyrir kynferðisbrot í tengslum við Epstein uppljóstranirnar.

Sjá einnig:

Andrés Mountbatten-Windsor handtekinn og færður í fangaklefa

Prinsessurnar tvær, Beatrice 37 ára og Eugenie 35 ára, eru sagðar hafa verið gjörsamlega miður sín samkvæmt frétt blaðsins Daily Star um málið. Það er eftir að faðir þeirra var handtekinn á afmælisdaginn sinn og eftir að hræðileg ljósmynd birtist af honum í bifreið á leið af lögreglustöðinni eftir 11 klukkutíma varðhald. Mynd sem hefur verið birt í öllum helstu fjölmiðlum heims.

„Þær áttu ekki vona á þessu. Þetta er mjög niðurlægjandi og truflandi fyrir þær báðar,“ segir Ingrid Seward, sérfræðingur í málefnum konungsfjölskyldunnar. Voru haldnir krísufundir alla helgina. En báðar systur hafa hingað til staðið þétt við hlið föðurs síns, sem var sviptur konunglegum titlum vegna Epstein skandalsins. Sagt er að Eugenie hafi nú hætt öllum samskiptum við föður sinn en óvíst er með Beatrice.

Fergie með dætrum sínum. Mynd/Getty

Á meðan er móðir þeirra, Sarah Ferguson, í felum þrátt fyrir að hafa skilið við Andrew fyrir 30 árum síðan. Kemur fram að hún hafi tekið mál hans mjög inn á sig. Í janúar var hún á rándýru heilsuhæli í Zurich í Sviss og nú er hún á ónefndum felustað í Bretlandi. Að sögn þeirra sem þekkja til þá heldur hún sig til hlés og grætur mikið.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Útskrifaðist með 9,7 í meðaleinkunn en gat ekki lesið sér til gagns

Útskrifaðist með 9,7 í meðaleinkunn en gat ekki lesið sér til gagns
Fókus
Fyrir 1 viku

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 1 viku

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með
Fókus
Fyrir 1 viku

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin
Fókus
Fyrir 1 viku

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“