fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fókus

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Fókus
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem ferðalangar könnumst við öll við þetta lúxusvandamál: Hverju á að pakka? Sama hversu stutt eða langt ferðalagið er. Nærbuxur eru nauðsynlegar en stundum getur maður lent í því að vanta hreina brók.

Ferðalangurinn Tara Woodcox sagði svo frá á Instagram að hún sé með óbrigðult ráð til að þrífa brækurnar á hótelherberginu.

„Segjum að þú sért að ferðast og þú hafir ekki pakkað nægilega mörgum nærbuxum og þú hugsar: Hverju ætla ég að vera í á morgun? Á hverju hótelherbergi er kaffikanna. Þú setur bara brókina þar sem kaffibaunirnar eru settar, loka henni, ýta á takkann og það rennur sjóðandi heitu vatni í gegnum hana.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Tara Woodcox (@tarawoodcox11)


„Hárþurrkan á baðherberginu? Þú notar hana til að þurrka og þá ertu kominn með hreinar nærbuxur til að vera í. Ég vissi ekki hversu margir þekktu þettaráð. Ég lærði það fyrir mörgum árum frá vinkonu minni sem var flugfreyja og það er snilld.“

Ekki ætti að taka ráð hennar of bókstaflega því augljóslega passar brókin ekki í hólfið. Hins vegar væri hægt að hita vatn og nota þannig sjóðandi vatn til að þrífa brækurnar.

Athugasemdum rigndi inn við myndbandið.

„Þetta er ekki snilld. Við skulum endurvekja sjálfsagða tillitssemi gagnvart öðrum! Gerum það eftirsóknarvert aftur.“
„Ég er hissa á því að þessu myndbandi hafi ekki verið eytt, það hlýtur að kalla á viðbrögð hótela. Þetta er svo óþægilegt, ég er svo áhyggjufullur fyrir hönd þeirra sem eru að fara eftir ráðum frá þér.“
„Ég mun aldrei nota kaffivél á hótelherbergi aftur.“

Aðrir bentu bara á gamla góða ráðið: Að þvo brækurnar í með heitu vatni og sápu í baðvaskinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans