fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fókus

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 13:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að nýtt æði hafi gripið um sig meðal íslenskra kvenna, svokallað Helgarpeysu-æði sem kenna má við hönnuðinn og textíllistakonuna Stellu Ögmundsdóttir hjá Fözz Studio. Undanfarið hefur Stella staðið fyrir prjónasmiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi og aðsóknin svo gríðarleg að setið er í hverju sæti.

Í raun þarf kannski engan undra að smiðjan sé svona vel sótt því í henni kennir Stella þátttakendum að prjóna fyrrnefnda Helgarpeysu sem þykir bæði þægileg og einstaklega flott.

Peysan er prjónuð úr afgangsgarni með 12 mm stórum hringprjón sem gerir ennfremur að verkum að hún vinnst hratt og hentar því bæði byrjendum sem og lengra komnum.

Sjálf kveðst Stella eingöngu nota garnafganga í sinni sköpun, en hún hannar alls kyns fallegar flíkur, listaverk og uppskriftir undir merkjum Fözz Studio. Því sameini Helgarpeysan þá hugmyndafræði sem hún vinnur eftir sem textíllistakona og hönnuður.

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 25. febrúar, verður Stella næst með smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi milli klukkan 19:30 – 21:00.

Allar nánari upplýsingar um smiðjuna má nálgast á heimasíðu safnsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu