fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað mál á hendur eiginmanni sínum til lögskilnaðar. Bæði konan og maðurinn eru íslensk en þau eru skilin að borði og sæng.

Fólkið gekk í hjúskap sumarið 2018 og eignuðust þau barn ári áður. Konan sótti um lögskilnað í nóvember árið 2023 hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og flutti út af heimili hjónanna. Árangurslaust sáttavottorð var gefið út af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í ágústmánuði árið 2024. Fyrr á sama ári var bú hjónanna tekið til opinberra fjárskipta.

Leyfi til skilnaðar að borði og sæng var veitt í október árið 2024 og sex mánuðum síðar óskaði konan eftir lögskilnaði hjá sýslumanni. „Málinu var vísað frá sbr. 41. gr. laga nr. 31/1993 á grundvelli 2. mgr. 36. gr. sömu laga þar sem stefndi mætti ekki til margítrekaðra viðtala hjá sýslumanni þrátt fyrir boðun í fjölda skipta,“ segir í stefnun málsins, sem er birt í Lögbirtingablaðinu. Sýslumaður getur veitt leyfi til lögskilnaðar ef bæði hjónin eru ásátt um það. En því er ekki að heilsa í þessu máli þar sem eiginmaðurinn hefur ekki mætt til fundar hjá sýslumanni. „Sýslumaður getur því ekki gefið út leyfi til lögskilnaðar, sem stefnandi á ótvíræðan rétt á. Stefnandi á því ekki annan kost en að höfða mál þetta,“ segir í stefnunni.

Konan byggir kröfu sína um lögskilnað á 2. málsgrein 36. greinar hjúskaparlaga en samkvæmt henni á hvor maki um sig rétt til lögskilnaðar eftir að sex mánuðir eru liðnir frá því að veitt var leyfi til skilnaðar að borði og sæng.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í lok mars. Manninum er birt fyrirkall í Lögbirtingablaðinu og honum stefnt til að mæta við þingfestinguna. Ef hann mætir ekki fyrir dóm má hann búast við því að dæmt verði í málinu grundvelli krafna stefnanda, þ.e. eiginkonunar.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld