fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 18:30

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mauricio Pochettino hefur ekki útilokað mögulega endurkomu til Tottenham eftir heimsmeistaramótið í sumar.

Argentínumaðurinn, sem stýrir bandaríska landsliðinu, segir að fókusinn sé alfarið á HM sem liðið mun halda að hluta til, en viðurkennir að allt sé opið þegar mótinu lýkur. Samningur hans við bandaríska sambandið rennur út eftir keppnina.

„Það eru alltaf sögusagnir og ég er stöðugt orðaður við félög,“ sagði Pochettino í viðtali við spænska útvarpsþáttinn Radiogaceta de los Deportes.

Hann nefndi sérstaklega Tottenham, þar sem hann naut mikillar velgengni á sínum tíma, en benti á að slíkar umræður spretti oft upp þegar lið ganga illa og fólk horfi til fortíðarinnar.

Pochettino lagði áherslu á að hann væri ekki að hugsa um næsta starf að svo stöddu.

„Við erum einbeittir að Heimsmeistaramótinu og bandaríska landsliðinu. Eftir það sjáum við hvað gerist,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool