fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Fókus

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Fókus
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Eric Dane lést þann 19. febrúar síðastliðinn eftir erfiða baráttu við ALS-taugahrörnunarsjúkdóminn. Dane var hvað frægastur fyrir hlutverk sitt í læknadramanu Grey’s Anatomy, þar sem hann lék lækninn Marc Sloan, eða McSteamy eins og hann var kallaður.

Frá því að Dane lést hafa margir fyrrum samstarfsfélagar minnst hans af mikilli hlýju. Mótleikarar minntust hans sem mikils húmorista, fagmanns og snillings. En ekki allir eru á sama máli.

Leikkonan Laura Ann Tull, sem lék með Dane í Grey’s Anatomy, minnist hans sem hrotta, hrotta sem hafi eyðilagt líf hennar.

„Hann var heigull sem níddist á mér. Lagði mig í einelti. Hæddist að mér. Þegar ég hafði sigrast á krabbameini. Þegar ég var að veikjast af sjálfsofnæmissjúkdómi. Hann var sjálfumglaður narsissisti. Andlát hans breytir ekki því tjóni sem hann olli mér.“

Þetta skrifaði leikkonan daginn eftir að Dane lést. Hún segir að eineltið sem leikarinn beitti hana hafi rænt hana heilsunni. Dane hafi hatað hana fyrir áhuga hennar á klassískum bókmenntum og hafi baktalað hana án þess að hafa nokkurn tímann talað við hana. Hafi leikkonan vonast eftir stuðningi eftir að hún birti þessar ásakanir þá skjátlaðist henni en aðdáendur Dane hafa urðað yfir hana í athugasemdum. Tull er sökuð um athyglissýki og fyrir að vanvirða minningu leikarans. Það sé ósmekklegt að tala illa um látinn mann sem getur ekki varið sig, hvað þá þegar hann er ekki einu sinni orðinn kaldur í gröfinni.

Tull lét þó gagnrýnina ekki stöðva sig og birti fleiri færslur þar sem hún heldur því meðal annars fram að hún hafi verið rekin úr þáttunum vegna veikinda og að það hafi verið vegna hennar sem Dane var rekinn á sínum tíma.

„Hann var að deyja. Ég vildi bara óska þess að hann hefði beðið mig afsökunar og gengist við því sem hann gerði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél