fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fréttir

Riðlaðist á dádýrshræi í vegkanti – Gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 28. febrúar 2026 21:30

Osborne var gripinn með buxurnar á hælunum, bókstaflega. Myndir/Wikipedia/Lögreglan í Muhlenberg sýslu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Kentucky í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa kynferðislega misnotað hræ af dádýri í vegkanti. Feldur af hræinu fannst í skapahárum mannsins.

Tilkynning barst lögreglunni í borginni Central City í vesturhluta Kentucky fylkis um klukkan 19:00 á laugardagskvöld, þann 21. febrúar. Það er frá ökumanni sem hafði séð karlmann skaka sér á dýri í vegkantinum. Hann væri hvítur á hörund, klæddur í gallabuxur og dökka peysu.

Blóð og hár á limnum

Lögregla var fljót á staðinn og fann mann sem passaði við lýsinguna strax skammt frá, hann var blóðugur og enn þá með buxurnar girtar niður. Einnig var hann með hár úr feldi dýrs á hettupeysunni sem hann var í.

Var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Maðurinn heitir Allen Osborne og er 32 ára gamall. Við nánari rannsókn fannst blóð og hár úr feldi  á getnaðarlimi hans, sem og á skapahárasvæðinu. Einnig fannst blóð á höndum hans og einhvers konar vökvi í skegginu. Kom í ljós að blóðið og hárin úr feldinum tilheyrðu dádýri.

Áður komið við sögu lögreglu

Var herra Osborne færður í varðhald og ákærður fyrir kynferðisglæp gegn dýri. Ekki kemur fram hvort að hræið af dádýrinu hafi fundist. Ekki heldur hvort að hann hafi sjálfur drepið dýrið eða ekki. Er allt eins líklegt að hann hafi fundið hræið af dýrinu eftir að einhver hafi keyrt á það.

Osborne hefur komið við sögu lögreglunnar áður. Árið 2025 var hann handtekinn fyrir ölvun og óspektir á almannafæri. Árið 2024 var hann ákærður fyrir að bera sig á almannafæri.

Kemur fram að hann eigi heima í bænum Owensboro, skammt frá Central City, og reki þar fyrirtæki. Ekki kemur þó fram hvers konar fyrirtæki það er.

Neitar sök

Osborne á að mæta fyrir dómara þann 2. mars næstkomandi. Þangað til verður hann í varðhaldi í fangelsinu í Muhlenberg sýslu nema hann reiði fram 5 þúsund dollara í tryggingu, það er rúmar 600 þúsund krónur.

Osborne hefur þegar neitað því að hafa framið nokkurn glæp. Verði hann fundinn sekur getur hann átt allt að fimm ára fangelsisdóm yfir höfði sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Langflestir láta blekkjast og telja gervigreindarmyndir og -myndbönd raunveruleg

Langflestir láta blekkjast og telja gervigreindarmyndir og -myndbönd raunveruleg
Fréttir
Í gær

Lilja segir Davíð ekki hafa notið sannmælis – „Þetta var honum ákaflega þungbært“

Lilja segir Davíð ekki hafa notið sannmælis – „Þetta var honum ákaflega þungbært“
Fréttir
Í gær

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma
Fréttir
Í gær

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl
Fréttir
Í gær

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir
Fréttir
Í gær

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins