fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fókus

Húslestur með Sunnu Dís

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 08:33

Sunna Dís Másdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvöld hefur göngu sína á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal ný og skemmtileg viðburðaröð undir yfirskriftinni Húslestur. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, hefur umsjón með viðburðunum þar sem boðið verður upp á huggulegar upplestrarstundir í hlýlegu og heimilislegu andrúmslofti.

Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu eftir langan dag, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?

Lesið verður upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn. Einnig mun gefast kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga.

Fyrsta bókin sem lesið verður upp úr er skáldsagan Í skugga trjánna eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur en hún var mest lesna og lánaða bók ársins 2025 á Borgarbókasafninu.

Í skugga trjánna er skáldævisaga í anda Skeggs Raspútíns sem kom fyrst út árið 2016 og hlaut frábærar viðtökur bæði lesenda og gagnrýnenda. Guðrún Eva tekst hér á við veruleikann af einlægni og áræðni, svo úr verður áhrifamikil saga full af húmor, hlýju og skáldlegri visku.

Screenshot

Sunna Dís les upp úr bókinni á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal miðvikudagskvöldið 25. febrúar milli kl. 20:00–21:00.

Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Útskrifaðist með 9,7 í meðaleinkunn en gat ekki lesið sér til gagns

Útskrifaðist með 9,7 í meðaleinkunn en gat ekki lesið sér til gagns
Fókus
Fyrir 1 viku

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 1 viku

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með
Fókus
Fyrir 1 viku

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin
Fókus
Fyrir 1 viku

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“