fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 07:55

Catherine O´Hara

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Catherine O’Hara hlaut verðlaun sem besta leikkona í gamanþáttaröð á Actors Awards mánuði eftir andlát sitt. Hún er þar með fyrsta leikkonan til að hljóta verðlaun á hátiðinni eftir andlát. 

Verðlaunin hlaut hún fyrir hlutverk sitt sem Patty Leigh í The Studio. Höfundur þáttanna, Seth Rogen, tók við verðlaununum og hélt tilfinningaþrungna ræðu þar sem hann sagði að O´Hara hefði þótt það heiður að vera verðlaunuð af öðrum leikurunum

Hann minntist þess einnig að hún væri „örlát, góð og ákveðin um leið og hún gerði aldrei lítið úr eigin hæfileikum. Hún sýndi virkilega að maður getur verið snillingur og góður og maður þarf ekki að gera það á kostnað annars á nokkurn hátt,“ sagði hann á meðan áhorfendur klöppuðu.

Hann hvatti fólk til að horfa á goðsagnakenndar frammistöður O’Hara á skjánum og sagði: „Við erum heppin að lifa í heimi þar sem hún deildi hæfileikum sínum með okkur.“

Seth Rogen

Myndbandið vakti tilfinningaþrungin hrifningu meðal leikara í áhorfendahópnum, þar á meðal Jenny Ortega, meðleikara O’Hara í kvikmyndinni Beetlejuice Beetlejuice.

O’Hara lést 30. janúar, 71 árs að aldri, á heimili sínu í Los Angeles „eftir stutt veikindi“. Var hún flutt á sjúkrahús snemma morguns í alvarlegu ástandi eftir að hún tilkynnti sjúkraflutningamönnum að hún ætti í öndunarerfiðleikum. Þann 9. febrúar kom í ljós að dánarorsök leikkonunnar var lungnablóðrek. Undirliggjandi dánarorsök var endaþarmskrabbamein. Laugardaginn 14. febrúar var hún jarðsett í einkaminningarathöfn sem haldin var í St. Martin of Tours kirkjunni í Los Angeles.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin