Myndin segir frá þremur nemendum í kvikmyndagerð, Heather Donahue, Joshua Leonard og Michael Williams, sem fara djúpt inn í skóg til að gera heimildarmynd um norn sem er sögð hafast við í skóginum. Nemendurnir komast fljótt að því að ekki er um neina flökkusögu að ræða.
Þegar myndin kom út reyndu framleiðendurnir einmitt að gera myndina og söguna eins raunverulega og þau gátu. Var myndin sögð byggjast á upptökum nemendanna og voru meira að segja ýmsir sem trúðu því að hlutirnir í myndinni hefðu gerst í raun og veru.
Óhætt er að segja að myndin hafi haft mikil áhrif á líf aðalleikkonunnar Heather Donahue en persóna hennar í myndinni hét einmitt sama nafni. Ákvað Heather að taka upp nýtt nafn og heitir hún í dag Rei Hance.
Rei, áður Heather, sagði í viðtali við GQ að þátttaka hennar í myndinni væri hennar stærsta eftirsjá í lífinu. Hún sagði að líklega yrði hennar alltaf minnst sem leikkonunnar í The Blair Witch Project og erfitt yrði að toppa þetta fyrsta alvöruhlutverk hennar. Ákvað hún því að hætta að leika og snúa sér að öðru árið 2008 eftir að hafa leikið hlutverk í hryllingsmyndinni The Morgue.
Í umfjöllun Mirror kemur fram að Rei hafi orðið viðurkenndur marijúanaræktandi eftir að hún lagði leiklistina á hilluna. Þá hefur hún tileinkað sér zen, sem í stuttu máli er form af búddisma.