fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Reyna að endurreisa Secret Solstice tónlistarhátíðina – Horfa á fleiri staði en Laugardalinn

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 15. janúar 2024 15:30

Secret Solstice er stærsta tónlistarhátíð sem haldin hefur verið á Íslandi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendir aðilar kanna nú áhugann á því að koma Secret Solstice tónlistarhátíðinni aftur á koppinn. Hátíðin hefur legið niðri síðan fyrir covid faraldurinn.

„Í sumar eru liðin 10 ár frá því að Secret Solstice hátíðin var haldin í fyrsta sinn og forsvarsmenn hátíðarinnar hafa síðustu vikur og mánuði fundið fyrir stöðugt auknum áhuga bæði frá gestum ásamt innlendum og erlendum listamönnum á að vekja hátíðina til lífsins á nýjan leik. Þá hafa erlendir aðilar sýnt áhuga á að koma að framkvæmd hennar,  en hátíðin hefur legið í dvala síðan Covid faraldurinn braust út árið 2020 og hefur því ekki farið fram síðustu fjögur sumur,“ segja forsvarsmenn hátíðarinnar.

Risanöfn

Í þau sex skipti sem hátíðin var haldin voru risastór tónlistaratriði flutt í Laugardalnum. Meðal annars Massive Attack, Wu-Tang Clan, Radiohead, Foo Fighters og Black Eyed Peas. Auglýst hafði verið að Cypress Hill, TLC og fleiri tónlistarmenn myndu troða upp á hátíðinni 2020 áður en henni var hætt. Nýtt félag tók yfir en hátíðin hefur ekki verið endurvakin eftir faraldur.

Gestir á Secret Solstice hátíðinni árið 2019. Mynd/Getty

„Það er mjög stór ákvörðun að setja hátíðina aftur af stað enda er Secet Solstice hátíðin gríðarlega stór, flókinn og dýr viðburður í framkvæmd,“ segir í tilkynningunni. „Forsvarsmenn hátíðarinnar ákváðu að kanna hugsanlegan áhuga á hátíðinni verði af henni aftur með því setja af stað herferð þar sem áhugasamir eru hvattir til þess að skrá sig. Þá geta þeir sem það gera einnig komið með tillögur eða óskir um hugsanlega listamenn fyrir hátíðina. Fyrir þá sem taka þátt verða svo ýmis önnur fríðindi ef að hátíðinni verður.“

Hægt er að sýna áhuga á síðunni https://arep.co/w/secret-solstice-signup.

Hugsanlega ekki í Laugardalnum

Náist að koma hátíðinni aftur af stað er ekki víst að hún verði haldin í Laugardalnum.

„Vegna breytinga í Laugardal þá er ekki víst að hátíðin geti farið fram þar aftur og því eru ýmsar nýjar staðsetningar til skoðunar – þá eru og allar ábendingar um skemmtilegar staðsetningar fyrir þessa langstærstu tónlistarhátíð Íslandssögunar vel þegnar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta