
Catalina varð þekkt eftir að upp komst um umfangsmikinn vændisrekstur sem hún rak meðal annars á Hverfisgötunni, rétt hjá lögreglustöðinni. Eftir þetta hefur Catalina verið þekkt sem „Miðbaugsmaddaman“. Hún var dæmd fyrir milligöngu um vændi árið 2010.
Hún fer yfir sögu sína í hlaðvarpsþættinum Eftirmál. Vísir greinir frá.
Catalina segir að planið sé að flytja aftur til Íslands. „Ég vil búa á báðum stöðum. En ég þarf að koma fyrirtækinu mínu af stað hérna og það kostar mikla vinnu […] Ég er að gera það sama og áður, ég er með stelpur og ég er með húsnæði. Það er allt eins og ég vil hafa það,“ segir hún.
Aðspurð segist Catalina „auðvitað“ vera með starfsemi hér á landi. „Þessi starfsemi er ekki að fara neitt, starfsemin er ennþá á Íslandi,“ segir hún.
Hún segir að flestir viðskiptavinir hennar séu giftir karlmenn. „Íslenskir karlmenn eru graðir, mjög graðir,“ segir hún.
Hlustaðu á þáttinn hér að neðan.