Backstreet Boys eru á leið til Íslands í fyrsta sinn og munu koma fram föstudaginn 28. apríl 2023 í Nýju Laugardalshöllinni, en hljómsveitin heldur einmitt upp á þrjátíu ára afmæli sitt í apríl á þessu ári. Ísland verður fyrsta stoppið á nýrri tónleikaferð og samkvæmt tilkynningu frá Senu er óhætt að lofa ógleymanlegri kvöldstund.
„Backstreet Boys eru ein áhrifamesta popphljómsveit heims, margverðlaunaðir, með óteljandi slagara og metsölutúra á bakinu. Í byrjun 2019 gáfu þeir út Grammy-tilnefndu plötuna DNA og bættu þar með í safnið lögum sem hafa trónað á toppi vinsældalista um allan heim.
Hljómsveitin er margrómuð fyrir að gera ógleymanlega tónleika og búast má við nostalgíufylltu og trylltu föstudagskvöldi, 28. apríl í Reykjavík.“
Tónleikarnir verða standandi og eru tvö verðsvæði í boði. A-svæði sem mun kosta 21.990 kr inn á og svo B-svæði á 15.990.
Miðasala hefst 2. mars klukkan 10. Póstlistaforsala Senu Live hefst 1. mars kl. 10 og Fan Club forsala hefst 28. febrúar.