Í mars 2022 opnaði auglýsingastofan Pipar\TBWA dyr sínar fyrir úkranísku flóttafólki. Þetta tímabundna úrræði varði í marga mánuði og breytti lífi fólks, báðum megin við borðið. Þessi mynd eftir Snorra Sturluson og Svetlönu Graudt gægist inn í hugarheim flóttafólks og fólksins sem hjálpar þeim. Frásögn af óskiljanlegum atburðum sem snerta okkur öll.

Snorri Sturluson og Svetlana Grauth eru leikstjórar myndarinnar segja að þarna séu sögur sem þurfti að segja og þær snerti okkur öll. MYNDIR/AÐSENDAR.

,,Ég er rússnesk en hef búið á Íslandi í þó nokkurn tíma. Afi minn var frá Úkraínu og þetta stríð kemur illa við mig og er svo sorgleg staðreynd. Þetta stríð hefði aldrei átt að verða. Ég ákvað því að mæta í Pipar\TBWA sem sjálfboðaliði til að hjálpa fólki eins og ég gat. En ég er líka blaðamaður og þegar ég byrjaði að kynnast fólki þá voru þarna sögur sem varð að segja. Varð að skrásetja svo þær gleymist ekki. Þessar sögur snerta okkur öll. Ég hugsaði því. Þetta er auglýsingastofa. Hér hlýtur að vera fólk sem getur unnið með mér að því að gera mynd um þetta,” segir Svetlana Graudt um myndina.

,,Mér fannst að það yrði að skrásetja þetta á einhvern hátt þar sem ég sá hvernig vinnustaður minn hafði algjörlega umturnast eftir að Pipar\TBWA var orðið að félagsmiðstöð og kvöldmatarstað fyrir flóttafólk. Það var svo mikið af fólki sem kom og allt þetta fólk hafði sögu að segja. Svo þegar ég frétti að Svetlana væri í sömu pælingum þá lá beinast við að við myndum gera þetta saman. Hún tók viðtölin og ég skildi ekkert sem var sagt. Það var ekki fyrr en í klippiherberginu þegar það var búið að texta þar sem við vorum að vinna að ég náði samhenginu. Þá komst maður oft við,” segir Snorri Sturluson, kvikmyndargerðamaður, um tilurð myndarinnar.

Til viðbótar við þau sem leikstýrðu myndinni var það Daria Leo Melanich sem vann að klippingu myndarinnar með Snorra en Daria kom sem flóttamaður frá Úkraínu til Íslands eftir að stríðið hófst.

Hér er má finna upplýsingar um myndina Bíó Paradís

Hér er má sjá brot úr myndinni:

Finding Shelter, how an ad agency became a community center