fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fókus

Haffi Haff er messuþjónn við Hallgrímskirkju og vill fá Trump aftur – „Ég var blekktur“

Fókus
Mánudaginn 10. október 2022 13:44

Haffi Haff. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil lifa eftir því mottói að vera alltaf ég sjálfur. Það þýðir líka að þora að segja skoðanir sínar án þess að skammast sín,“ segir Hafsteinn Þór Guðmundsson, betur þekktur sem Haffi Haff.

„Ég er blússandi samkynhneigður maður sem vill fá Trump aftur, sem fer í kirkju og eltir Jesú og klæði mig í sundbol þegar ég fer í sund. Það er ég að vera algjörlega ég sjálfur að standa með mér, óháð því hvað öðru fólki finnst. Ég hef alltaf verið öðruvísi og ætla að halda því áfram ef það þýðir að ég sé samkvæmur sjálfum mér,” segir Haffi í nýjasta Podcasti Sölva Tryggvasonar.

Biden partur af gömlu elítunni

Haffi er uppalinn í Bandaríkjunum og hefur nær alla ævi verið með annan fótinn þar. Hann er ekki hrifinn af núverandi stjórnvöldum vestan hafs:

„Ég get í það minnsta sagt fyrir mitt leyti að ég var blekktur. Þetta er ekki það sem ég ætlaði að kjósa. Þessi ríkisstjórn er mjög slæm og ég er eiginlega farinn að grátbiðja um appelsínugula slæma kallinn aftur. Ég vil bara einhvern sem getur komið saman heilum setningum. Biden er bara partur af gömlu góðu elítunni sem reynir að höfða til fólks með því að lofa alls konar hlutum og ganga í augun á fólki með alls konar auðveldum slagorðum. Svo eru aðgerðirnar allt aðrar en það sem sagt er eða var lofað fyrir kosningar. Við erum komin á þann stað núna að fólk verður bara að fara að vakna og spyrja spurninga,” segir Haffi, sem áttar sig á því að það sé ekki vinsælt að halda þessum skoðunum á lofti.

Tilbúinn að tala bæði um Trump og Jesú

„Orðin Trump og Jesús eru tvö mest pólariserandi orðin í heiminum í dag. En ég er tilbúinn að tala bæði um Trump og Jesú, af því að ég verð að vera heiðarlegur við sjálfan mig og aðra. Ég virði það að annað fólk hafi aðrar skoðanir en ég á stjórnmálum og trúarbrögðum, en að sama skapi finnst mér ég hafa fullan rétt á að hafa mínar skoðanir. Við eigum að virða rétt hvors annars til ólíkra skoðana. Við lifum öll saman á þessari jörð og eigum svo margt sameiginlegt. Það að við séum með ólíkar skoðanir á einstökum málum á að vera eðlilegt og það þýðir ekki að okkur geti ekki þótt vænt um hvort annað.”

Fer í messu alla sunnudaga

Haffi er mjög trúaður og fer í messu á hverjum sunnudegi. Hann segir það nánast tabú að vera samkynhneigður og fara í kirkju:

,,Ég man þegar ég byrjaði að fara í kirkju og ég var alltaf að bíða eftir því að ég ætti að finna fyrir skömm, en svo kom það ekki. Bara falleg tónlist, góður boðskapur og fólk að koma saman í einlægri orku. Ég tók ákvörðun um að læra meira um kristni og taka trúna alvarlega. Ég fékk Nýja Testamentið gefið fyrir tilviljun og ég byrjaði að lesa. Það tók mig 4 ár að klára að lesa það og sá hvergi í bókinni að ég mætti ekki vera eins og ég vildi vera. Núna er trúin og kirkjan mjög stór hluti af lífi mínu og ég er messuþjónn í Hallgrímskirkju, sem að mínu mati er fallegasta bygging Norðurlanda. Það eru allir velkomnir í kirkju og ég hef tekið þá ákvörðun fyrir mig að kirkjan sé og verði hluti af mínu lífi.”

Þátturinn með Haffa Haff er áskriftarþáttur í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Hér má sjá brot úr þættinum. Allir þættir eru aðgengilegir á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
Fókus
Í gær

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brynja og Þórhallur selja „hús hamingjunnar“ með söknuði

Brynja og Þórhallur selja „hús hamingjunnar“ með söknuði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 4 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?