fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Margverðlaunuð hraunsýning opnar í Reykjavík – „Þetta er án efa skemmtilegasti jarðfræðitími í heimi“

Fókus
Föstudaginn 16. september 2022 10:10

Hjónin Ragnhildur Ágústsdóttir og Júlíus Ingi Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur gengið á í húsinu að Fiskislóð 73 á Granda í Reykjavík síðustu vikur og mánuði, en þar er unnið hörðum höndum að því að opna lifandi hraunsýninguna Lava Show. Lava Show opnaði í Vík í Mýrdal árið 2018, á hundrað ára afmæli síðasta Kötlugoss, og hafa mörg hundruð þúsund manns, Íslendingar sem og erlendir ferðamenn, notið þess að fylgjast með einstöku sjónarspili glóandi hrauns og kviku síðustu fjögur árin. Nú er komið að Reykjavík og opnar Lava Show í Reykjavík þann 1. október næstkomandi.

„Við erum gríðarlega spennt að opna sýninguna í Reykjavík og afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem sýningin hefur hlotið. Það er alls ekki sjálfgefið að lítið nýsköpunarfyrirtæki nái þessum magnaða árangri á svo stuttum tíma en jákvæð viðbrögð við sýningunni í Vík hafa verið okkur mikil hvatning og veitt okkur innblástur til að vaxa,“ segir Júlíus Ingi Jónsson sem stofnaði Lava Show ásamt eiginkonu sinni Ragnhildi Ágústsdóttur.

Júlíus og Ragnhildur eru vakin og sofin þessa dagana yfir nýja sýningarstaðnum að Fiskislóð enda í mörg horn að líta og fjölmörg handtök sem þarf til að fullkomna staðinn fyrir opnun. Miðasala á lifandi hraunsýninguna Lava Show í Reykjavík opnar í dag og ef marka má viðtökur við sýningunni í Vík má búast við miklum önnum hjá þeim hjónum næstu daga við móttöku pantanna. Þau eru hins vegar hokin af reynslu í þeim efnum og öllu vön.

„Við fengum hugmyndina að Lava Show þegar við gengum upp að eldgosinu á Fimmvörðuhálsi fyrir rúmum áratug. Sú upplifun var ógleymanleg og við vildum reyna að endurgera hana svo sem flestir fengju að njóta. Einhverjum fannst þessi hugmynd helst til brjáluð en við kýldum á það og sjáum ekki eftir því,“ segir Júlíus. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og ekkert lát á vinsældum hraunsýningarinnar. Lava Show lenti til dæmis í topp tíu í nýsköpunarkeppninni Gulleggið árið 2016, hlaut Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2021 og alþjóðlegu nýsköpunarverðlaunin Global Wiin í júlí síðastliðnum.

Á sýningu Lava Show eru aðstæður eldgoss endurskapaðar með því að bræða alvöru hraun upp í 1100°C og hella því inn í sýningarsal fullan af fólki, upplifun sem fyrirfinnst ekki neins staðar annars staðar í heiminum í öruggu umhverfi. Júlíus útilokar ekki að sýningin vaxi enn frekar á fleiri heitum reitum í heiminum í komandi framtíð en nú á nýi sýningarstaðurinn í Reykjavík hug hans allan.

„Okkur finnst vel við hæfi að opna á nýjum stað á fjögurra ára afmæli Lava Show og getum ekki beðið eftir að leyfa gestum og gangandi að heyra snarkið í rauðglóandi hrauninu og finna hitann sem frá því stafar þegar það vellur áfram í sýningarsal okkar þar sem fyllsta öryggis er gætt. Í bland við hughrifin frá hrauninu bjóðum við upp á ýmsan fróðleik um allt sem tengist eldgosum. Þetta er án efa skemmtilegasti jarðfræðitími í heimi.“

Eins og áður segir hefst miðasala á Lava Show í Reykjavík í dag á vefsíðunni lavashow.com. Þar má einnig næla sér í miða á sýninguna í Vík í Mýrdal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“