Julie er 44 ára og kallar sig Julie With The Booty á samfélagsmiðlum. Hún er með tæplega hálfa milljón fylgjendur á Instagram og um 45 þúsund á TikTok.
Hún er stolt af því að vera svokölluð „sykurmamma“ eða „sugar mama“. Hún borgar kærasta sínum rúmlega 2,6 milljónir króna á mánuði til að gera „hvað sem hún vill.“ Meðal annars þrífa sundlaugina og elda. Kærastinn er 15 árum yngri en hún.
Julie svarar alls konar spurningum um sykurmömmulífsstíllinn í myndbandi á TikTok.
Aðspurð hvort hún kaupir eitthvað fyrir sykurdrenginn svarar hún: „Já, hvað sem hann vill.“
Næst svaraði hún því hvað hann þyrfti að gera í staðinn. „Hvað sem ég vill.“
Fylgjendur Julie voru mjög áhugasamir um hvað hún borgar honum mánaðarlega. „Ég borga honum rúmlega 2,6 milljónir á mánuði en það var lægra þennan mánuð þar sem hann gleymdi að þrífa sundlaugina,“ sagði hún.
@julie.withthebootyQuestions I get asked as sugar mama ##cougar ##cougartok ##cougarville ##cougarsoftiktok♬ The Magic Bomb (Questions I Get Asked) [Extended Mix] – Hoàng Read
Í samtali við Fabulous Digital viðurkennir hún að netverjum finnst aldursmunur þeirra mjög forvitnilegur. Hún er reglulega spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að 29 ára kærasti hennar muni fara frá henni fyrir einhverja yngri.
„Ætti hann ekki að hafa meiri áhyggjur að ég geri það,“ grínast hún á móti.
Julie segir að fólk heldur stundum að hann sé sonur hennar þegar þau eru á meðal almennings. Það truflar hana ekki og segir hún: „Ætli hann gæti ekki verið það.“