fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Jóhanna Guðrún opnar sig um umfjöllunina eftir að vinir Sjonna sigruðu: „Ég fékk vægt taugaáfall“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 24. september 2020 10:34

Jóhanna Guðrún.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í Podcasti Sölva. Jóhanna, sem hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul hefur um árabil verið ein vinsælasta söngkona landsins.

Hún lenti í öðru sæti í Eurovision árið 2009, en lenti í leiðinlegu atviki eftir undankeppni Eurovision tveimur árum eftir að hún fór út fyrir Íslands hönd.

„Ég var að keppa þarna ásamt mörgum atriðum. Svo gerist það að Sjonni Brink deyr skömmu fyrir keppnina og eðlilega fara vinir hans með atriðið inn og atriðið vinnur. Síðan eru myndavélarnar í græna herberginu og þær eru settar á mig þegar atriðið er kynnt og klappið úr salnum heyrist í sjónvarpinu. Það klappaði enginn í græna herberginu, en þarna var ég búin til sem eitthvað skrímsli í fjölmiðlum dagana á eftir af því að ég átti að vera svo ósátt og ekki að kunna að samgleðjast. Mér fannst svo hræðileg tilhugsun að fólk héldi að ég væri ekki sátt við að þetta atriði færi út, eins og mér þætti ekki hræðilegt að maður hefði dáið frá konunni sinni og börnum langt fyrir aldur fram. Ég fékk eiginlega bara vægt taugaáfall að þetta væri staðan og fólk héldi að ég væri svona út af þessu. Það tók mig talsverðan tíma að jafna mig á þessu,“ segir hún.

Ævintýraleg vegferð

Jóhanna Guðrún var sem barn komin út í hinn stóra heim tónlistarinnar og fer í viðtalinu yfir þá vegferð sem átti sér stað.

„Þarna fer einhver atburðarrás í gang þar sem mörg fyrirtæki vilja ná mér á samning. Ég fer með Maríu Björk, sem var umboðsmaðurinn minn á þessum tíma og syng inn á fullt af skrifstofum í New York. Þarna fer ég inn á skrifstofuna hjá Tommy Mottola, sem var yfir Sony alls staðar. Hann var þannig að það urðu allir stressaðir í kringum hann og fólk tiplaði á tánum, enda var hann með rosaleg völd. Sem barn horfir maður á þetta og hugsar að þetta sé einhver svaka kall og ef ég hitt einhvern sem minnir mig á mafíu-foringja, þá er það hann. Hann tekur um höfuðið á manni og kyssir mann á ennið þegar hann hittir mann, þannig að hann passar alveg inn í ímyndina. En hann var alltaf rosalega hlýr og yndislegur við mig og hann vildi fá mig þó að hann væri að hætta hjá Sony og fá mig yfir í „Casablanca Records“. En í þessum samningaviðræðum kemur upp ágreiningur á milli hans og umboðsmannsins míns og þau voru ekki alveg sammála um hvernig næstu skref ættu að vera. Hann er svolítið „my way or the high way“ og við ákváðum að labba í burtu frá honum af því að það voru mörg önnur fyrirtæki með áhuga, en svo komu upp fleiri hlutir sem fóru ekki alveg eins og við hefðum viljað . Það var búið að kenna mér að vera þæg og góð stelpa, en þarna átti ég allt i einu að sýna þeim eitthvað brjálæðislegt „star quality“ á 10 mínútum. Það fannst mér erfitt,“ segir Jóhanna Guðrún.

Barnastjarna

Jóhanna Guðrún var sem fyrr segir orðin þjóðþekkt aðeins 11 ára gömul og er því líklega ein stærsta barnastjarna sem Ísland hefur átt. Þegar hún horfir til baka segist hún sjá bæði kosti og galla við það núna.

„Jákvæði hlutinn er að þú hefur ákveðið forskot, bæði af því að þú ert búinn að vinna 10 árum lengur en flestir og svo færðu skóla í að gera mistök og mörgu fleiru. Neikvæða hliðin er að fólk þekkti mig mjög snemma, sama hvort ég fór út í búð eða sund, sem kemur með þessum pakka. Það gerir það stundum að verkum að maður reynir að vera ósýnilegur þegar maður er ekki í stuði. Ég var í raun aldrei barn og heldur ekki unglingur. Þegar ég var 11 ára var ég komin með plötusamning erlendis og átti bara að standa mig þar. Þetta hefur á ákveðinn hátt valdið því að ég er oft mjög alvarleg og á svolítið erfitt með að leika mér. Ég vandist því svo ung að þurfa að standa alltaf við mitt.“

Jóhanna hefur átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Í viðtalinu fara hún og Sölvi yfir kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=S3QBwM6Rp_M&t=269s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“