fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Aðþrengd í einangrun – „Ég er hrædd um að þetta ástand hafi fært okkur á endastöð“

Fókus
Sunnudaginn 23. ágúst 2020 22:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín lesanda sem hefur verið í einangrun með maka sínum vegna COVID.

______________________

„Sæl, Kristín. Við hjónin lentum verr í annarri bylgju Covid en þeirri fyrri. Við greindumst með sjúkdóminn og höfum verið í sóttkví og einangrun til skiptis. Maðurinn minn veiktist töluvert en ég fékk vægari flensueinkenni. Við höfum átt farsælt hjónaband þó svo að það hafi margt breyst eftir að krakkarnir fluttu að heiman, þá þurftum við að vinna í því að finna okkar þráð aftur og höfum markvisst reynt það.

Aftur á móti líður okkur báðum eins og undanfarnar vikur hafi alveg farið með okkur. Við fengum engan stuðning frá hvort öðru, vorum að drepa hvort annað úr leiðindum, vorum agaleg fórnarlömb til skiptis og tími sem margir myndu segja að styrktu sambandið myndaði afar djúpa gjá milli okkar. Við erum enn í einangrun en erum búin að ná betri heilsu. Ég er hrædd um að þetta ástand hafi fært okkur á endastöð og ef ég segi það bara eins og er, þá nenni ég ekki að standa í þessu. Hvað gerum við nú?”

______________________

 

Fjarlægð og vonleysi

Sæl, kæru hjón. Ég skil eiginlega ekki að ég hafi ekki fengið sambærilega spurningu fyrr. Í Wuhan mynduðust raðir fyrir utan sýslumannsembættin eftir COVID því fólk sótti unnvörpum um skilnað.

Þó svo að of skammt sé liðið frá því faraldurinn byrjaði til þess að rannsóknarniðurstöður liggi fyrir, þá er það vitað mál að COVID hefur haft áhrif á fjölskyldur á marga vegu. Mikil samvera, veikindi, tekjumissir og óvissa er blanda sem hlýtur að kalla á skjálfta í hinum stöðugustu hjónaböndum.

Aftur á móti er það mín reynsla af vinnu með pörum á þessum tíma að annaðhvort hefur ástandið styrkt sambandið eða myndað gjá milli hjóna. Það segir mér að þó þið finnið núna fyrir fjarlægð og vonleysi, þá þýðir það ekki að sambandið sé búið. Kannski er þetta tækifæri til þess að endurskoða tilveru ykkar, vinna í því að styrkja sambandið á ný og leggja nýjar áherslur? Kannski varð þessi reynsla til þess að þið eruð efins um hjónabandið. En stóra spurningin er: Hvað ætlið þið að gera við þá upplifun?

Formgerðarbreytingar

Við köllum það formgerðarbreytingar þegar fjölskylda tekur breytingum, til dæmis þegar fólk skilur, deyr eða fæðist. Þið nefnið að það hafi verið erfitt hjá ykkur þegar börnin fluttu að heiman en það er einmitt dæmi um breytingar sem valda öðru mynstri í formgerð fjölskyldunnar.

Formgerðarbreytingar hafa alltaf áhrif á parsambönd, nokkuð sem þið hafið greinilega upplifað áður. Þið funduð út úr þeim breytingum sem segir mér að þið getið líka fundið út úr þeim aðstæðum sem þið eruð í núna.

Mig langar til að minna ykkur á að þið eruð ennþá í sóttkví, erfiðleikarnir standa enn yfir og þá er kannski ekki rétti tíminn til þess að taka afdrifaríkar ákvarðanir.

Þú nefnir að þið standið á endastöð, orðið hljómar svo endanlegt. Skilnaðarferli er alltaf ferli og á sér ekki stað klukkan þrjú á þriðjudegi. Það tekur alltaf tíma, rúm og aðgerðir að ganga í gegnum slíkt, svo þó að þú upplifir þig á endastöð getur vel verið að frá henni liggi leið sem leiðir ykkur að betri og bættri líðan.

Hvað gerum við nú?

Þú spyrð mig, hvað gerum við nú? Og ég þakka þér innilega fyrir traustið, en þið farið ekki neitt úr sóttkvínni svo hvernig væri að nýta tímann, setja spilin á borðið og ræða framhaldið?

Ég get ekki sagt ykkur hver ykkar lausn verður eða hvað þið þurfið svo ég mæli heldur með að taka þann tíma sem þið eigið í sóttkví til að hugleiða hvernig ykkur líður og hvað þið þurfið til þess að líðan ykkar verði betri? Þó svo að þú „nennir þessu ekki“ þá veistu að þið getið þetta.

Reglulegar pásur

Margir halda að góð tengsl snúist um að eyða miklum tíma saman, vera alltaf sammála, stunda mikið kynlíf og leiðast út um allt. Þar eru fræðin ósammála. Örugg tengsl snúast um að par sé öruggt um að það geti tjáð sig um líðan sína og þarfir og sömuleiðis öruggt um að makinn geri slíkt hið sama. Mörgum líður vel í einrúmi og þurfa að fá næði til þess að vera ein, þó að þeim líði vel í parsambandinu. Öðrum líður vel í miklum félagsskap og þurfa að vera mikið með maka sínum eða öðru fólki svo þeim líði almennt vel.

Kannski hafið þið ekki þörf fyrir að vera alltaf saman og þessi reynsla kennt ykkur að til þess að samband ykkar gangi vel þá þurfið þið reglulegar „pásur“ frá hvort öðru? Kannski þurfið þið að vinna betur með hvernig þið styðjið hvort annað, hvernig þið biðjið um stuðning og hvað í því felst. Þá vitiði það bara.

Að lokum, þetta eru undarlegir og fordæmalausir tímar. Slíkt getur haft undarleg og fordæmalaus áhrif á parsambönd, jafnvel hin farsælustu hjónabönd. Nú andið þið inn og út, meltið þessa miklu reynslu og ræðið ykkur niður á næstu skref. Ég ætla að trúa því að COVID verði bráðum eitt það besta sem hefur komið fyrir ykkur. Gangi ykkur vel.

_______________

 

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla